Samkeppni Logo

Kvörtun snyrtifræðinga vegna synjunar á viðurkenningu á starfsleyfi

Reifun

Erindi barst frá snyrtifræðingum sem lokið höfðu
námi í snyrtifræði við tiltekinn skóla vegna synjunar menntamálaráðuneytisins
um viðurkenningu á iðnréttindum. Fram kom að mat á umsóknum um iðnréttindi færi
fram hjá nefnd sem m.a. væri skipuð tveimur snyrtifræðingum tilnefndum af
Félagi íslenskra snyrtifræðinga. Mæltist samkeppnisráð til þess að reglum yrði
breytt þannig að faglegt mat á erlendu námi í snyrtifræði færi fram hjá
menntamálaráðuneytinu eða öðrum sem ekki ættu hagsmuna að gæta.

Álit
Málsnúmer

15 / 1998

Dagsetning
25. nóvember 1998
Fyrirtæki

Snyrtifræðingarnir Nína B. Sigurðardóttir

Atvinnuvegir

Sérfræðiþjónusta og önnur þjónusta

Málefni

Samkeppni og hið opinbera

Leit

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.