Álit
samkeppnisráðs: „Þegar opinber
fjárveiting er notuð til framleiðslu á hugbúnaði sem boðinn er til sölu á
frjálsum markaði, í samkeppni við hugbúnað sem framleiddur er af
einkafyrirtækjum sem ekki njóta opinberrar fjárveitingar, verður að gæta þess
að hugbúnaðurinn sé ekki seldur undir raunverulegu kostnaðarverði.
Í
þessu sambandi er vakin athygli á niðurlagsákvæði 2. mgr. 14. gr.
samkeppnislaga en þar segir að þess skuli gætt að samkeppnisrekstur sé ekki
niðurgreiddur af verndaðri starfsemi. Verður að telja að þetta ákvæði sé lögum
um Námsgagnastofnun til fyllingar. Með vísan til þess er eðlilegt, til að skapa
fyrirtækjum jöfn samkeppnisskilyrði, að heimildinni í 3.mgr. 5.gr. laga um
Námsgagnastofnun, um að hafa þau náms- og kennslugögn sem stofnunin framleiðir
til sölu á frjálsum markaði, sé ekki beitt eða þess gætt að söluverð þeirra
standi undir raunverulegum kostnaði.“
2 / 1994
Gruns hf
Námsgagnastofnun
Opinber þjónusta sem ekki er tilgreind annars staðar
Sérfræðiþjónusta og önnur þjónusta
Samkeppni og hið opinbera
"*" indicates required fields