Samkeppni Logo

Samkeppnishamlandi ákvæði í lögum og reglum um innflutning á grænmeti

Reifun

Álitið birt í kjölfar
rannsóknar á meintu samráði og öðrum samkeppnishömlum á grænmetis-, kartöflu-
og ávaxtamarkaði sem lauk með ákvörðun nr. 13/2001. M.a. sem fram kom í gögnum þess
máls voru tilraunir dreifingaraðila til að hafa áhrif á ákvarðanir landbúnaðarráðuneytisins
um tollvernd á tilteknum tegundum grænmetis. Af þessum sökum og fleirum beindi
samkeppnisráð áliti til landbúnaðarráðherra. Á það
var bent að fyrirkomulag það sem gilt hefði við innflutningshömlur á grænmeti
hefði auðveldað innflutnings- og dreifingarfyrirtækjum á grænmetismarkaði að
hafa með sér ólögmætt samráð við þær fákeppnisaðstæður sam ríktu á þeim
markaði. Með vísan til þessa beindi samkeppnisráð því til landbúnaðarráðherra að
hann hefði frumkvæði að því að tekin yrðu til endurskoðunar þau ákvæði tolla-
og búvörulaga sem hindruðu viðskipti með grænmeti og drægjua úr samkeppni á
markaði fyrir þær vörur. Endurskoðunin hefði það að markmiði að efla samkeppni
í viðskiptum með grænmeti þannig að hún mætti leiða til lækkunar vöruverðs fyrir
íslenska neytendur. 

Álit
Málsnúmer

2 / 2001

Dagsetning
30. mars 2001
Fyrirtæki

Sölufélag garðyrkjumanna

Atvinnuvegir

Neysluvörur, rekstrarvörur o.fl.

Málefni

Samkeppni og hið opinbera

Leit

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.