Samtök verslunar og þjónustu sendu erindi vegna
verðlagningar verðlagsnefndar búvara á mjólkurvörum í heildsölu. Samkeppnisráð
birti eftirfarandi álit. „ Með
vísan til d-liðar 2. mgr. 5. gr. og 19. gr. samkeppnislaga beinir samkeppnisráð
þeim tilmælum til landbúnaðarráðherra að hann beiti sér fyrir því að
heildsöluverðlagning á búvöru verði gefin frjáls svo fljótt sem auðið er og
eigi síðar en 30. júní 2004. Þá beiti ráðuneytið sér fyrir því að verðlagsnefnd
búvara heimili ekki samninga um verðtilfærslu, skv. 3. mgr. 13. gr. og 22. gr.
búvörulaga, þegar heildsöluverðlagning á mjólk verður frjáls. Auk þess er óskað
eftir að ráðuneytið beiti heimildum sínum samkvæmt 71. gr. búvörulaga til að
tryggja eftir föngum að samningar um verkaskiptingu skv. ákvæðinu raski ekki
samkeppni og vinni þar með gegn markmiðum þess að gefa heildsöluverðlagningu á
mjólk frjálsa. Í því sambandi verði reynt að vinna gegn samráði afurðastöðva um
framleiðslu og sölu og aðra lykilþætti í samkeppni.“
2 / 2002
Samtök verslunar og þjónustu
Neysluvörur, rekstrarvörur o.fl.
Samkeppni og hið opinbera
"*" indicates required fields