World Class Akureyri kvartaði yfir leigusamningi
Akureyrarbæjar við Vaxtaræktina vegna húsnæðis og taldi leiguna lága og fela í
sér opinberan styrk. Samkeppnisráð
beindi þeim tilmælum til Akureyrarbæjar að við endurnýjun áðurnefnds
húsaleigusamnings, sbr. bókun sem fylgdi uppsögn hans, yrði við ákvörðun
fjárhæðar húsaleigunnar tekið tillit til allra þeirra kostnaðarliða sem almennt
féllu til við rekstur húsnæðis á frjálsum markaði óháð því hvort Akureyrarbær
sem eigandi Íþróttahallarinnar þyrfti að greiða slíkan kostnað eða ekki. Með
því yrði að mati samkeppnisráðs leiðrétt samkeppnisleg mismunun sem kynni að
hafa stafað af þeirri húsaleigu sem Vaxtarræktin greiddi fyrir húsnæði í
Íþróttahöllinni.
3 / 2001
World Class Akureyri
Sérfræðiþjónusta og önnur þjónusta
Samkeppni og hið opinbera
"*" indicates required fields