Samkeppni Logo

Erindi Verslunarráðs Íslands um fjárhagslegan aðskilnað innan Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins

Reifun

Verslunarráð Íslands fór
fram á það að samkeppnisráð mælti fyrir um fjárhagslegan aðskilnað á milli
samkeppnishluta ÁTVR og þess hluta sem naut einkaréttar. Samkeppnisráð vakti
athygli fjármálaráðherra á því að ákvæði í reglugerð um ÁTVR og framkvæmd
aðskilnaðar innan stofnunarinnar stríddi gegn markmiði samkeppnislaga. Mælst
var til þess við ráðherra að gripið yrði til tilgreindra ráðstafana vegna ÁTVR
m.a. að innflutningur áfengis og tengd starfsemi yrði rekin í sérstakri einingu
eða deild innan fyrirtækisins sem væri fjárhagslega aðskilin annarri starfsemi
þess, sbr. 2. mgr. 14. gr. samkeppnislaga.

Álit
Málsnúmer

5 / 1997

Dagsetning
18. september 1997
Fyrirtæki

Verslunarráð Íslands

Atvinnuvegir

Neysluvörur, rekstrarvörur o.fl.

Málefni

Samkeppni og hið opinbera

Leit

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.