Samkeppni Logo

Erindi Samtaka fiskvinnslustöðva án útgerðar um meinta mismunun fiskvinnslufyrirtækja

Reifun

Erindi barst um ójafna
samkeppnisstöðu fiskvinnslustöðva sem ekki eru reknar í tengslum við útgerð, og
fiskvinnslufyrirtækja sem jafnframt reka útgerð.
Í áliti benti samkeppnisráð sjávarútvegsráðherra á það mat
ráðsins að ef reglur um handhöfn aflahlutdeildar yrðu rýmkaðar og heimilað yrði
að framselja aflahlutdeild til aðila sem aðeins reka fiskvinnslu væri sú
breyting til þess fallin að auka samkeppni í viðskiptum með sjávarafla til
vinnslu, jafna að vissu marki samkeppnisstöðu fiskvinnslustöðva með og án
útgerðar og auðvelda aðgang nýrra keppinauta að markaðnum.

Álit
Málsnúmer

6 / 1996

Dagsetning
31. maí 1996
Fyrirtæki

Samtök fiskvinnslustöðva

Atvinnuvegir

Neysluvörur, rekstrarvörur o.fl.

Málefni

Samkeppni og hið opinbera

Leit

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.