Í fyrirspurn
samtakanna var spurt um afstöðu Samkeppnisstofnunar til þeirrar verkaskiptingar
sem ákveðin var í reglugerð nr. 98/1995 um Póst- og símamálastofnun(P&S),
skipulag og verkefni, með tilliti til einkaréttarstarfsemi og
samkeppnisstarfsemi.
Samkeppnisráð taldi ekki ástæðu til að gera athugasemdir við það form sem
var á aðskilnaði einkaréttarstarfsemi og samkeppnisstarfsemi P&S. Hins
vegar virtust vera atriði í samskiptum einkaréttar- og samkeppnissviða
stofnunarinnar sem gætu valdið samkeppnislegri mismunun á markaðnum. Fælust þau
einkum í upplýsingamiðlun einkaréttarsviðs til samkeppnissviðs og skorti á sambærilegri miðlun til einkafyrirtækja á sama markaði. Fleiri
athugasemdir voru gerðar.
8 / 1995
Samtök seljenda fjarskiptabúnaðar
Fjarskipti, upplýsingatækni og fjölmiðlun
Samkeppni og hið opinbera
"*" indicates required fields