Erindi barst frá
bankaráði Búnaðarbanka Íslands hf. og Landsbanka Íslands hf. þar sem óskað var
álits á fyrirhuguðum samruna bankanna og hvort hann samræmdist samkeppnislögum.
Álit samkeppnisráðs var eftirfarandi:
„Á grundvelli fyrirliggjandi upplýsinga og eins og málið hefur verið lagt
fyrir samkeppnisráð hefur ráðið komist að þeirri niðurstöðu að
fyrirhugaður samruni Landsbanka Íslands hf. og Búnaðarbanka Íslands
hf. leiði til of mikillar samþjöppunar og markaðsráðandi stöðu á
tilteknum
mörkuðum á eftirfarandi sviðum; markaði fyrir innlán, markaði fyrir
útlán, greiðslumiðlunarmörkuðum og markaði fyrir verðbréfa- og
gjaldeyrisviðskipti. Það er niðurstaða samkeppnisráðs að samruninn hafi
skaðleg áhrif á samkeppni og brjóti í bága við 18. gr. samkeppnislaga nr.
8/1993, sbr. lög nr. 107/2000.“
8 / 2000
Búnaðarbanki Íslands hf
Fjármálaþjónusta
Samkeppni og hið opinbera
"*" indicates required fields