Leit í úrlausnum: sláið inn efnisorð og/eða veljið úr valmyndinni hér fyrir neðan.

Álit

Kvörtun vegna vöruvalsreglna Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins

  • Sækja skjal
  • Málsnúmer: 17/1998
  • Dagsetning: 16/12/1998
  • Fyrirtæki:

    Engin fyrirtæki finnast

  • Atvinnuvegir:
    • Neysluvörur, rekstrarvörur o.fl.
  • Málefni:
    • Samkeppni og hið opinbera
  • Reifun

    Kvartað var yfir vöruvalsreglum ÁTVR. Samkeppnisráð taldi að ákvæði  í fyrrgreindum reglum yllu mismunun á milli einstakra birgja ÁTVR, eftir því hvort um innlendan framleiðanda var að ræða eða birgi sem flytti vörur sínar inn erlendis frá. Var þeim tilmælum beint til stjórnar ÁTVR að beita sér fyrir endurskoðun á umræddu ákvæði. Athygli fjármálaráðherra var vakin á álitinu.