Samkeppni Logo

Ert þú að brjóta samkeppnislög

31. október 2025

Eru einhverjir keppinautar þínir jafnframt viðskiptavinir þínir eða samstarfsmenn?

Já: Ekki
er æskilegt að keppinautar séu einnig samstarfsmenn fyrirtækis. Meginreglan er
sú að fyrirtæki á samkeppnismörkuðum skuli haga sér sjálfstætt um öll þau
atriði sem samkeppni er um. Þar má t.d. nefna ákvarðanir um vöruúrval,
þjónustuleiðir og verð. 

Nei: Frábært, því ekki er æskilegt að keppinautar séu einnig samstarfsmenn fyrirtækis.
Meginreglan er sú að fyrirtæki á samkeppnismörkuðum skuli haga sér sjálfstætt
um öll þau atriði sem samkeppni er um. Þar má t.d. nefna ákvarðanir um
vöruúrval, þjónustuleiðir og verð.

Ertu á markaði þar sem þú þekkir flesta eða alla samkeppnisaðila?

 

Já:
Ákvæði 10. gr. samkeppnislaga banna hverskonar samkeppnishamlandi samstarf
milli fyrirtækja. Undir samráð getur fallið hvers konar samskipti milli
starfsmanna keppinauta, hvort heldur sem samskiptin eru einhliða eða af beggja
hálfu.

Nei: Gott, ákvæði 10. gr. samkeppnislaga banna hverskonar samkeppnishamlandi
samstarf milli fyrirtækja. Undir samráð getur fallið hvers konar samskipti
milli starfsmanna keppinauta, hvort heldur sem samskiptin eru einhliða eða af
beggja hálfu.

Er algengt að starfsfólk færist á milli keppinauta á þínum markaði?

 Já:
Það gæti verið óhentugt þar sem í samkeppnislögum er lagt bann við hverskonar
samkeppnishamlandi samstarfi á milli tveggja eða fleiri fyrirtækja. Samráð á
milli keppinauta telst vera eitt alvarlegasta brotið í samkeppnisrétti enda er
ætlast til þess að keppinautar hegði sér að öllu leyti sjálfsætt á markaði.

Nei: Gott því ekki er heppilegt að starfsfólk færist á milli keppinauta á sama
markaði þar sem lagt er bann við hverskonar samkeppnishamlandi samstarfi á
milli tveggja eða fleiri fyrirtækja. Samráð á milli keppinauta telst vera eitt
alvarlegasta brotið í samkeppnisrétti enda er ætlast til þess að keppinautar
hegði sér að öllu leyti sjálfsætt á markaði.

Áttu í samskiptum við samkeppnisaðila í vinnu, félagslífi eða einkalífi (t.d. á sölusýningum, ráðstefnum eða fagfundum)?

Já:
Það er mögulegt að teljast aðili að ólögmætu samráði þrátt fyrir að aðrir sjái um
framkvæmdahlið þess. Það skiptir ekki máli hvernig samráðið á sér stað, þ.e.
hvort fulltrúar fyrirtækja hittist á fundum, skrifist á, undirriti formlega
samninga eða sammælist um markaðshegðun á einhvern annan hátt.

Nei: Flott því mögulegt er að teljast aðili að ólögmætu samráði þrátt fyrir að aðrir
sjái um framkvæmdahlið þess. Það skiptir ekki máli hvernig samráðið á sér stað,
þ.e. hvort fulltrúar fyrirtækja hittist á fundum, skrifist á, undirriti
formlega samninga eða sammælist um markaðshegðun á einhvern annan hátt.

Ræðið þið verð eða kostnað?

Já:
Allt samráð milli keppinauta á markaði um verð, afslætti, viðskiptakjör,
skiptingu markaða, framleiðslu eða önnur viðskipaleg atriði er bannað.

Nei: Frábært þar sem allt samráð milli keppinauta á markaði um verð, afslætti,
viðskiptakjör, skiptingu markaða, framleiðslu eða önnur viðskipaleg atriði er
bannað. 

Ræðið þið tiltekna viðskiptavini eða skiptingu markaða?

 Já: Ólöglegt er að bera saman bækur við keppinauta og ræða viðskiptavini, stöðu á markaði eða hvort skipta eigi með sér markaðnum.

Nei: Gott enda er ólöglegt er að bera saman bækur við keppinauta og ræða viðskiptavini, stöðu á markaði eða hvort skipta eigi með sér markaðnum.

Hafið þið deilt upplýsingum um viðskiptaáætlanir?

 Já:
Ólöglegt er að bera saman bækur við keppinauta og ræða tilhögun tilboða, t.d.
hvaða verð eða afslætti aðilar ætla að bjóða.

Nei: Gott enda er ólöglegt að bera saman bækur við keppinauta og ræða tilhögun
tilboða, t.d. hvaða verð eða afslætti aðilar ætla að bjóða.

Hafið þið sammælst um áætlanir eða leikreglur í viðskiptum/samkeppni?

Já: Ólöglegt
er að sammælast um áætlanir eða leikreglur. Mögulegt er að vera aðili að
samráði þar sem enginn framkvæmir nokkuð, þ.e. samráð um athafnaleysi.

Nei: Frábært enda er ólöglegt er að sammælast um áætlanir eða leikreglur.
Mögulegt er að vera aðili að samráði þar sem enginn framkvæmir nokkuð, þ.e.
samráð um athafnaleysi.

Ef svarið við einu eða fleiru af ofantöldu er já, er líklegt að þið hafið brotið samkeppnisreglur. Viðurlög geta varðað sektum og jafnvel fangelsisvist. Kynntu þér samkeppnislögin vel og leitaðu til Samkeppniseftirlitsins til að tilkynna brot og fá ráðgjöf.

Leit

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.