Samkeppni Logo

Markaðsskilgreiningar

31. október 2025
snowcap mountain

Samkvæmt 4. gr. samkeppnislaga er
markaður sölusvæði vöru og staðgönguvöru og/eða sölusvæði þjónustu og staðgönguþjónustu.
Staðgönguvörur eru vörur eða þjónusta sem að öllu eða miklu leyti uppfylla sömu
þarfir og veita þær því hver  annarri samkeppnislegt
aðhald. Við skilgreiningu vöru- og/eða þjónustumarkaða þarf því að rannsaka og
meta hvaða vörur eru staðgönguvörur.

Við
skilgreiningu markaða þarf einnig að greina það sölusvæði sem viðkomandi
fyrirtæki keppa á. Með því er átt við svokallaðan landfræðilegan markað sem er
það svæði þar sem viðkomandi fyrirtæki bjóða vörur sínar og þjónustu. Á
landfræðilegum markaði þurfa eftirspurn og samkeppnisskilyrði einnig að vera nægilega
lík til að hægt sé að greina markaðinn frá öðrum nærliggjandi svæðum. Landfræðilegur
markaður getur ýmist verið staðbundinn (t.d. höfuðborgarsvæðið), landsbundinn (Ísland)
eða alþjóðlegur (nær út fyrir Ísland).

Við
vissar aðstæður getur verið nauðsynlegt að skilgreina markað út frá tíma en það
er frekar sjaldgæft. Segja má almennt að tilgangur markaðsskilgreiningar sé að
finna það svið viðskipta sem viðkomandi vara eða þjónustan hefur áhrif á. Nauðsynlegt
getur verið að skilgreina markað í hverju nýju máli og geta skilgreiningin
tekið breytingum ef aðstæður, s.s. samkeppnisskilyrði breytast.

Leit

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.