Samkeppni Logo

Stjórn og stjórnsýsla

31. október 2025
snowcap mountain

Samkeppniseftirlitið er sjálfstæð stofnun. Með yfirstjórn þess fer
stjórn, sem sækir umboð sitt til ráðherra og ber ábyrgð gagnvart honum.
Hlutverk stjórnar er að móta áherslur í starfi og fylgjast með starfsemi og
rekstri Samkeppniseftirlitsins. Stjórnin ræður forstjóra sem annast daglega
stjórn stofnunarinnar. Meiri háttar efnislegar ákvarðanir eru bornar
undir stjórn til samþykktar eða synjunar. Stjórnin hefur sett sér
starfsreglur, nr. 380/2023 þar sem m.a. er kveðið á um
hvað teljist til meiri háttar ákvarðana.

Stjórn
Samkeppniseftirlitsins er þannig skipuð til 8. september 2025:

  • Sveinn Agnarsson, formaður stjórnar
  • Sigríður Logadóttir
  • Hafsteinn Þór Hauksson

Varamenn í stjórn Samkeppniseftirlitsins eru þessir:

  • Ragnhildur Jónsdóttir
  • Helga
    Reynisdóttir

Forstjóri Samkeppniseftirlitsins annast daglega stjórnun
á starfsemi og rekstri stofnunarinnar. Stjórn stofnunarinnar ákveður starfskjör
forstjóra og setur honum starfslýsingu. Forstjóri ræður starfsmenn
stofnunarinnar.

Forstjóri Samkeppniseftirlitsins er Páll Gunnar Pálsson.
Aðstoðarforstjóri er Ásgeir Einarsson.
Aðalhagfræðingur er Valur Þráinsson.

Sameiginleg yfirlýsing atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins og
Samkeppniseftirlitsins

Í gildi er sameiginleg yfirlýsing atvinnuvega- og
nýsköpunarráðuneytisins og Samkeppniseftirlitsins sem þjónar sem vegvísir um
framkvæmd samkeppnismála og stefnumótunar í málaflokknum og um hlutverk
ráðuneytisins annars vegar og Samkeppniseftirlitsins hins vegar á vettvangi
samkeppnismála. Yfirlýsingin er liður í framkvæmd stefnumótunar og árangursmats
sem liggur til grundvallar fjármálastefnu og fjármálaáætlunar samkvæmt lögum um
opinber fjármál. Þá þjónar yfirlýsingin einnig þeim tilgangi að tryggja
sjálfstæði og ábyrgð Samkeppniseftirlitsins á framkvæmd verkefna sinna.

Samkeppniseftirlitið er A-hluta stofnun og er rekstur hennar
greiddur af ríkissjóði.

Leit

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.