
Markmið samkeppnislaga er að efla virka samkeppni í viðskiptum. Samkeppniseftirlitinu ber að ná markmiðum samkeppnislaga með því að vinna gegn óhæfilegum hindrunum og takmörkunum á frelsi í atvinnurekstri, vinna gegn skaðlegri fákeppni og samkeppnishömlum og auðvelda aðgang nýrra keppinauta að markaðnum.
Eftirlit Samkeppniseftirlitsins tekur til hvers konar atvinnustarfsemi án tillits til þess hvort hún er rekin af einstaklingum, félögum, opinberum aðilum eða öðrum.
Samkeppniseftirlitið tók til starfa 1. júlí 2005, en þá tóku gildi ný samkeppnislög, nr. 44/2005. Með sömu lögum voru Samkeppnisstofnun og Samkeppnisráð lögð niður.
Fyrir gildistöku laga nr. 44/2005 fóru samkeppnisyfirvöld einnig með eftirlit með óréttmætum viðskiptaháttum og gagnsæi markaðarins. Neytendastofa fer nú með þau verkefni, sbr. lög nr. 57/2005, um eftirlit með óréttmætum viðskiptaháttum og gagnsæi markaðarins.
Samkeppniseftirlitið leggur metnað sinn í að vera fyrirmyndarstofnun og hefur sem slík hlotið ýmsar viðurkenningar bæði hérlendis og erlendis. Hvort sem litið er til stefnu, málsvarahlutverk, starfsemi eða mannauðs þá hefur stofnunin ávallt haft það að leiðarljósi að vera í framlínu ríkisstofnana og fylgt þeirri hugmyndafræði að alltaf sé hægt að gera betur. Stofnunin er stolt af árangri sínum og mun áfram vera fylgin sér í því að leita leiða til að viðhalda ímynd sinni sem fyrirmyndarstofnun og helsti málsvari heilbrigðrar samkeppni hér á landi.



"*" indicates required fields