
Ákvörðunum Samkeppniseftirlitsins má áfrýja til sérstakrar nefndar, áfrýjunarnefndar samkeppnismála. Skrifleg rökstudd kæra skal berast nefndinni innan fjögurra vikna frá því að aðila máls var tilkynnt um ákvörðun Samkeppniseftirlitsins. Með kæru til áfrýjunarnefndar skal fylgja málskotsgjald að upphæð 200.000 kr. sem rennur í ríkissjóð. Ef málið vinnst fyrir nefndinni er málskotsgjaldið endurgreitt. Áfrýjunarnefnd samkeppnismála tekur kæru ekki til meðferðar nema málskotsgjald fylgi. Samkvæmt samkeppnislögum skal úrskurður áfrýjunarnefndar liggja fyrir innan sex vikna frá áfrýjun. Áfrýjun frestar hins vegar ekki gildistöku ákvarðana Samkeppniseftirlitsins.
Í áfrýjunarnefnd samkeppnismála sitja þrír menn og jafnmargir til vara, skipaðir af viðskiptaráðherra eftir tilnefningu Hæstaréttar. Formaður og varamaður hans, sem jafnframt er varaformaður, skulu uppfylla hæfisskilyrði hæstaréttardómara, en aðrir nefndarmenn skulu hafa faglega kunnáttu á sviði samkeppnis- og viðskiptamála. Skipunartími áfrýjunarnefndar er hinn sami og skipunartími stjórnar Samkeppniseftirlitsins.
Málsmeðferðarreglur áfrýjunarnefndar, uppfærðar apríl 2022.
Áfrýjunarnefnd samkeppnismála
er skipuð þannig, frá og með 5. ágúst 2021:
Björn Jóhannesson, hæstaréttarlögmaður, formaður.
Anna Kristín Traustadóttir, löggiltur endurskoðandi.
Friðrik Árni Friðriksson Hirst, framkvæmdastjóri Lagastofnunar HÍ.
Lárus L. Blöndal, hæstaréttarlögmaður, varaformaður.
Brynhildur Benediktsdóttir, hagfræðingur.
Jóna Björk Helgadóttir, hæstaréttarlögmaður.
Unnur L. Hermannsdóttir, hdl.
afryjun.samkeppni(hjá)afns.is
Símanúmer 849 1309
Fax 530 1801
Áfrýjunarnefnd samkeppnismála
c/o Björn Jóhannesson, formaður áfrýjunarnefndar
Skipholti 50d, 4. hæð (Megin lögmannsstofa)
105 Reykjavík
"*" indicates required fields