
Samkeppniseftirlitið hefur markað sér stefnu í jafnréttismálum sem ætlað er að tryggja jafnræði allra kynja í starfsemi og rekstri stofnunarinnar og stuðla að því að starfsfólk njóti virðingar innan stofnunarinnar og fái notið sín í starfi án tillits til kynferðis í samræmi við ákvæði og markmið jafnréttislaga.
Í jafnréttisáætlun Samkeppniseftirlitsins er kveðið á um að jafnræðis skuli gætt við mannaráðningar, í ákvörðunum um laun og einnig að tekið skuli tillit til fjölskyldu- og einkalífs starfsfólks m.a. með sveigjanlegum vinnutíma. Jafnframt því að unnið skuli að kynjasamþættingu í allri stefnumótun Samkeppniseftirlitsins.
Skýrlega kemur fram í jafnréttisáætlun Samkeppniseftirlitsins að hvorki kynbundin áreitni né kynferðisleg áreitni verði liðin innan stofnunarinnar, sjá nánar í Jafnréttisáætlun Samkeppniseftirlitsins frá september 2022.
Samkeppniseftirlitið hefur það að markmiði að tryggja öllu
starfsfólki sínu jöfn laun og jöfn kjör fyrir sömu eða jafnverðmæt störf í
samræmi við 19. grein jafnréttislaga nr. 150/2020. Samkeppniseftirlitið greiðir
laun í samræmi við umfang og kröfur hvers starfs óháð kyni þess sem innir þau
af hendi þannig að enginn ómálefnalegur launamunur sé til staðar.
Til þess að fylgja jafnlaunastefnu Samkeppniseftirlitsins
skuldbindur stofnunin sig til að:
Jafnlaunastefna er órjúfanlegur hluti af jafnréttisstefnu og
jafnréttisáætlun Samkeppniseftirlitsins.
Allar ábendingar varðandi jafnlaunavottun má senda á mannaudsmal@samkeppni.is undir heitinu „Jafnlaunavottun“.
"*" indicates required fields