
Ef markaðsrannsókn Samkeppniseftirlitsins
leiðir til þess að talið er nauðsynlegt að grípa til íhlutunar á hlutaðeigandi
markaði getur hún, skv. 2. mgr. 16. gr. samkeppnislaga, falið í sér hverjar þær
ráðstafanir sem nauðsynlegar eru til að efla samkeppni, stöðva brot eða
bregðast við athöfnum opinberra aðila sem kunna að hafa skaðleg áhrif á
samkeppni. Samkeppniseftirlitið getur beitt nauðsynlegum úrræðum bæði til
breytingar á atferli og skipulagi, í réttu hlutfalli við brot sem framið hefur
verið eða þær aðstæður eða háttsemi sem um ræðir.
Samkeppniseftirlitið hefur þannig skv.
framangreindu heimild til íhlutunar þrátt fyrir að fyrirtæki hafi ekki brotið
bannreglur samkeppnislega eða um sé að ræða samkeppnishamlandi samruna.
Telji Samkeppniseftirlitið að íþyngjandi ákvörðun
kunni að verða tekin í kjölfar markaðsrannsóknar, þ.m.t. úrræði til breytinga á
atferli og skipulagi fyrirtækja, skal gefa út andmælaskjal í tengslum við
áðurnefnda frummatsskýrslu, sbr. 8. gr. reglna nr. 490/2013. Fer um
andmælaskjal að öðru leyti skv. 17. gr. reglna nr. 880/2005 um málsmeðferð
Samkeppniseftirlitsins.
Rannsókn, eða hluta hennar, sem leiðir til
bindandi íhlutunar, er lokið með ákvörðun Samkeppniseftirlitsins samkvæmt IV.
kafla reglna nr. 880/2005 um málsmeðferð Samkeppniseftirlitsins, sbr. 2. mgr.
áðurnefndrar 10. gr. reglna nr. 490/2013.
Samkvæmt 1. mgr. áðurnefndrar 10. gr. reglna
nr. 490/2013 fjallar stjórn Samkeppniseftirlitsins um niðurstöður
markaðsrannsókna og undir hana eru bornar, til samþykktar eða synjunar,
ákvarðanir á grunni rannsóknarinnar sem fela í sér íhlutun samkvæmt c-lið 1.
mgr. 16. gr. samkeppnislaga eða öðrum ákvæðum laganna.
Ákvarðanir um íhlutun Samkeppniseftirlitsins
skv. áðurnefndri 2. mgr. 16. samkeppnislaga, eru kæranlegar til áfrýjunarnefndar
samkeppnismála, sbr. 9. gr. samkeppnislaga.
Samkvæmt c-lið 1. mgr. 8. gr. samkeppnislaga
hefur Samkeppniseftirlitið það hlutverk að gæta þess að aðgerðir opinberra
aðila takmarki ekki samkeppni og benda stjórnvöldum á leiðir til að gera
samkeppni virkari og auðvelda aðgang nýrra keppinauta að mörkuðum. Séu
niðurstöður markaðsrannsóknar þær að regluverk eða framkvæmd stjórnvalda feli í
sér samkeppnishömlur í skilningi c-liðar 1. mgr. 16. gr. samkeppnislaga getur
Samkeppniseftirlitið gefið út álit eða tilmæli til viðkomandi stjórnvalda, sbr.
d-lið 9. gr. reglna nr. 490/2013, sbr. 18. gr. samkeppnislaga og 24. gr.
málsmeðferðarreglna nr. 880/2005.
Má geta þess í þessu samhengi að þann 4.
apríl 2017 birti Samkeppniseftirlitið fjögur álit og tilmæli til stjórnvalda
vegna niðurstöðu gagnvart stjórnvöldum í markaðsrannsókn á eldsneytismarkaði,
sbr. eftirfarandi álit Samkeppniseftirlitsins nr.:
·
1/2017 samkeppnishömlur á eldsneytismarkaði álit til
umhverfis og auðlindaráðherra ,
·
2/2017 samkeppnishömlur á eldsneytismarkaði álit til
Reykjavíkurborgar,
·
3/2017 samkeppnishömlur á eldsneytismarkaði
Álit til samgöngu og sveitastjórnarráðherra og
·
4/2017, samkeppnishömlur á eldsneytismarkaði
álit til Flutningsjöfnunarsjóðs.
"*" indicates required fields