
Undirverðlagning
er það þegar fyrirtæki selur vöru eða þjónustu undir tilteknu kostnaðarviðmiði.
Almennt er miðað við verð undir meðaltali breytilegs kostnaðar.
Undirverðlagning getur farið gegn samkeppnislögum ef um er að ræða
markaðsráðandi fyrirtæki. Getur slík háttsemi mögulega skapað eða viðhaldið
hindrunum inn á markaði og þannig haft skaðlegar afleiðingar fyrir samkeppni.
Við mat á því
hvort undirverðlagning feli í sér brot á samkeppnislögum þarf því fyrst að
komast að niðurstöðu um hvort hlutaðeigandi fyrirtæki hafi verið í
markaðsráðandi stöðu á þeim tíma sem undirverðlagningin átti sér stað. Ef svo
er þarf að taka til skoðunar umfang undirverðlagningarinnar og í hve langan
tíma hún hefur staðið. Undirverðlagning getur falið í sér brot á
samkeppnislögum þegar markaðsráðandi fyrirtæki selur vöru eða þjónustu á undir
kostnaðarverði samfellt í ákveðinn tíma í þeim tilgangi að styrkja
markaðsráðandi stöðu sína og jafnvel ýta keppinaut(um) sínum út af markaðinum
eða til að hindra innkomu nýs eða nýrra keppinauta.
Reglum sem ætlað
er að vinna gegn undirverðlagningu byggja á þeirri hugmyndarfræði að það sé
óæskilegt að markaðsráðandi fyrirtæki geti í skjóli fjárhagslegs styrks selt
vöru á óeðlilega lágu verði til þess að að eyða samkeppni. Jafnvel þó neytendur
njóti þess til skamms tíma að fá viðkomandi vöru á mjög lágu verði vegna
undirverðlagningar er talið að sú röskun á samkeppninni sem stafar af
undirverðlagningu leiði þegar til lengri tíma er litið til hærra verðs, minni
gæða og fækkunar á valkostum neytenda. Þannig geta afleiðingarnar
undirverðlagningar markaðsráðandi fyrirtækis t.a.m. verið þær að veikari
keppinautar sjá ekki ástæðu til að taka þátt í samkeppni. Þar fyrir utan er
ljóst að hvati að því að leggja til atlögu við markaðsráðandi fyrirtæki verður
minni ef þeim er frjálst að bregðast við samkeppni með því að verðleggja vöru
sína undir kostnaðarverði. Loks getur afleiðing undirverðlagningar orðið sú að
keppinautar neyðist til hætta starfsemi.
Fræðilega séð
eru ákveðin tilvik þar sem undirverðlagning markaðsráðandi aðila felur ekki í
sér brot á samkeppnislögum. Fellur það almennt í hlut hlutaðeigandi
fyrirtækisins að færa sannfærandi málefnaleg rök fyrir því. Sala á birgðum sem
eru að nálgast eða komnar rétt yfir síðasta söludag eða kynningartilboð á nýjum
vörum geta t.a.m. verið hugsanlegar réttlætingar á undirverðlagningu.
Samkeppnisyfirvöld hafa í nokkrum tilvikum þurft að grípa
til aðgerða vegna skaðlegrar undirverðlagningar markaðsráðandi fyrirtækja:
Ákv. nr. 64/2008 komst Samkeppniseftirlitið að því að
Hagar (sem reka m.a. verslunina Bónus) höfðu misnotað markaðsráðandi stöðu sína
með aðgerðum sem beindust að keppinautum félagsins á matvörumarkaði. Með því
brutu þeir samkeppnislög. Brot Haga fólust í undirverðlagningu sem félagið greip
til á árunum 2005 og 2006. Seldi Hagar mjólk á undir kostnaðarverði í verslunum
Bónuss í langan tíma. Voru mjólkurvörurnar seldar með stórfelldu tapi og leiddi
til þess að verslanir Bónuss voru í heild reknar með tapi. Taldi
Samkeppniseftirlitið að brotið hafi verið til þess fallið að valda
atvinnulífinu og almenningi miklu samkeppnislegu tjóni. Áfrýjunarnefnd komst að
sömu niðurstöðu með úrs. nr. 2/2009. Héraðsdómur staðfesti úrskurðinn með dómi
nr. E-7649/2009 sem síðar var staðfestur með dómi Hæstaréttar nr. 188/2010.
Með dómi Hæstaréttar nr. 205/2011 staðfesti Hæstiréttur
að Icelandair hafi misnotað markaðsráðandi stöðu sína á flugleiðinni milli
Keflavíkur og Kaupmannahafnar. Var Icelandair gert að greiða 80 milljón kr. í
sektir. Dómur er fordæmisgefandi þar sem hann staðfestir að markaðsráðandi
aðili í farþegaflugi verður að gæta sín vel á að hindra ekki aðgang að
markaðinum með kynningu og verðlagningu á flugfjargjöldum.
Með ákv. nr. 30/2012 komst Samkeppniseftilritið að þeirri niðurstöðu að
Síminn hefði misnotað markaðsráðandi stöðu sína með tilboði sem fyrirtæki gerði
notendum sínum sumarið 2009. Hljóðaði tilboðið upp á 3G netlykil og áskrift
fyrir 0 kr. í allt sumar. Var Símanum gert að greiða 60 milljón kr. í
stjórnvaldssekt. Taldi Samkeppniseftirlitið að í tilboðinu hafi falist ólögmæt
undirverðlagning. Síminn kærði ákvörðun Samkeppniseftirlitsins til
úrskurðarnefndar samkeppnismála sem komst að þeirri niðurstöðu, með úrsk. nr.
10/2011, að Síminn nyti mikilla yfirburða þegar horft er á fjarskiptamarkaðinn
í heild sinni. Þessir yfirburðir gerðu það sérstaklega brýnt að komið sé í veg
fyrir að Síminn nýtti sér yfirburði sína á hefðbundnum fjarskiptamörkuðum til
þess að skapa sér sömu yfirburði á nýjum fjarskiptamörkuðum sem eru í þróun.
"*" indicates required fields