Samkeppni Logo

Kaup Senu ehf. á Consert ehf.

Reifun

Með bréfi, dags. 15. desember 2006, var Samkeppniseftirlitinu tilkynnt um kaup Senu ehf. á ráðandi hlut í Consert ehf. Að mati Samkeppniseftirlitsins fela kaupin í sér samruna í skilningi 4. og 17. gr. samkeppnislaga en af þeim sökum fellur samruninn undir samrunaeftirlit 17. gr. laganna þar sem veltuskilyrði eru uppfyllt. Athugun Samkeppniseftirlitsins hefur leitt í ljós að ekki er ástæða til að aðhafast vegna kaupa Senu á Consert. Er í þessu sambandi vísað til þess að ekki virðist vera skörun á starfsemi félaganna sem hefur í för með sér röskun á samkeppni. Þá hafa ekki komið fram önnur atriði sem benda til þess að samruninn geti raskað samkeppni. Í ljósi þessa er það mat eftirlitsins að ekki sé ástæða til að aðhafast frekar vegna umrædds samruna á grundvelli 17. gr. samkeppnislaga.

Ákvarðanir
Málsnúmer

2 / 2007

Dagsetning
16. janúar 2007
Fyrirtæki

Conert ehf.

Sena ehf.

Atvinnuvegir

Afþreying, íþróttir, happdrætti og fjárhættuspil

Sérfræðiþjónusta og önnur þjónusta

Málefni

Samrunamál

Leit

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.