Spurt og svarað um eftirlit vegna lækkunar virðisaukaskatts:
Hér er að finna svör við helstu spurningum um framkvæmd og eftirlit með tímabundinni lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti. Fjallað er um skyldur söluaðila, úrræði stjórnvalda og forsendur þess að gripið er til sérstaks eftirlits, auk reynslu af fyrri breytingum á gjöldum á eldsneyti.
Samkvæmt lögunum er Samkeppniseftirlitinu veitt heimild til að leggja stjórnvaldssektir á fyrirtæki sem gerast brotleg við umrædd lagaákvæði. Jafnframt er ráðherra heimilt að setja reglugerð um tímabundnar aðgerðir, að fenginni umsögn eftirlitsins. Tímabundnar aðgerðir geta falist í ákvörðun hámarksverðs eða hámarksálagningar eða annarri stýringu á verðlagningu eða viðskiptakjörum.
Í nefndaráliti meirihluta efnahags- og viðskiptanefndar um frumvarpið er inntak skyldunnar til að skila lækkun virðisaukaskatts til neytenda skýrð nánar. Þar er ítrekuð sú ótvíræða skylda að söluaðilar skili hinni tímabundnu lækkun að fullu í endanlegu útsöluverði. Þannig sé söluaðilum „óheimilt að auka eigin álagningu á eldsneyti í því skyni að taka til sín þann ávinning sem af tímabundinni lækkun virðisaukaskatts hlýst.“
Hins vegar undirstrikar meirihlutinn að frumvarpið takmarki ekki heimild söluaðila til breytinga á útsöluverði „til samræmis við sannanlegar breytingar á innkaupsverði eða öðrum ytri kostnaðarþáttum. Fari svo að heimsmarkaðsverð á olíu taki umfangsmiklum hækkunum á umræddu tímabili verður söluaðilum ekki gert að selja vöru sína með tapi. Samkeppniseftirlitinu ber eðli málsins samkvæmt að taka tillit til framangreinds enda ætti söluaðilum að vera í lófa lagið að sýna fram á áhrif ytri aðstæðna á útsöluverð.“
Í virku samkeppnisumhverfi ætti ekki að vera þörf á eftirliti með verðlagningu keppinauta. Fyrri rannsóknir Samkeppniseftirlitsins á eldsneytismarkaði gefa hins vegar skýrt til kynna að fákeppnisaðstæður eru á eldsneytismarkaði og samkeppni veik.
Vísast um þetta m.a. til skýrslu nr. 2/2015, um markaðsrannsókn á eldsneytismarkaði, skýrslu nr. 2/2020, um breytingar á eldsneytismarkaði í framhaldi af markaðsrannsókn, og umsagnar nr. 7/2025, um frumvarp til laga um kílómetragjald. Í þeirri umsögn bendir Samkeppniseftirlitið á að vísbendingar um að samkeppni í sölu á bifreiðaeldsneyti sé takmörkuð. Við þær aðstæður sé „óráðlegt af stjórnvöldum að ganga út frá því að lækkun eldsneytisgjalda skili sér að öllu leyti í lægra eldsneytisverði til neytenda, enda eru þeir í erfiðri stöðu að fylgja því eftir.“
Jafnframt má um þetta vísa til umsagnar nr. 3/2006 um frumvarp það sem nú er orðið að lögum, einkum málsgreina 6 – 9.
Hin nýsettu lög endurspegla þá afstöðu löggjafans að samkeppnisaðstæður á eldsneytismarkaði kalli á sérstakt eftirlit svo tryggja megi að markmið laganna nái fram að ganga.
Samhliða upptöku á kílómetragjaldi um sl. áramót voru felld niður opinber gjöld sem innheimt höfðu verið af eldsneyti. Gert var ráð fyrir því að sú lækkun myndi skila sér til neytenda. Í umsögn Samkeppniseftirlitsins vegna þessa var áréttað að frá sjónarhóli viðskiptavina væri „alger lágmarkskrafa að lækkun á eldsneytisverði hjá olíufélögunum samsvari að fullu lækkun hinna opinberu gjalda. Jafnframt er brýnt að lækkunin raungerist yfir lengra tímabil.“ Voru neytendur og aðrir viðskiptavinir olíufélaganna hvattir til að vera á varðbergi og fylgjast með því að lækkunin myndi skila sér til þeirra.
Í kjölfar umræddra breytinga hafa FÍB, ASÍ og einstök verkalýðsfélög sett fram sjónarmið um að í aðdraganda breytinganna og á fyrstu mánuðum þessa árs hafi olíufélögin aukið álagningu sína og/eða hækkað verð á eldsneyti.
Samhliða hefur Samkeppniseftirlitið óskað eftir gögnum frá söluaðilum eldsneytis til að m.a. leggja mat á þróun álagningar á eldsneytismarkaði og áhrif samkeppni á hana. Fyrsta skoðun móttekinna gagna gefur til kynna að fyrrgreindar ályktanir ASÍ, FÍB og fleiri séu á rökum reistar. Jafnframt gefa gögnin til kynna að nokkur munur geti verið á einstökum eldsneytisfyrirtækjum að þessu leyti.
Samkeppniseftirlitið mun leita sjónarmiða eldsneytisfyrirtækjanna vegna þessa og í framhaldinu birta niðurstöður sínar. Nýtist þessi vinna jafnframt við það eftirlit sem Samkeppniseftirlitinu hefur verið falið með hinum nýju lögum.