Logo Competition
Send a suggestion
Send data
Menu
  1. Home
  2. Published material
  3. News

The role of effective competition in action against global warming

9 November 2021

Á ráðstefnu danska samkeppniseftirlitsins um samkeppnismál sem fram fór í Kaupmannahöfn á dögunum fjallaði Daninn Margrethe Vestager, varaforseti framkvæmdastjórnar ESB, um þýðingu virkrar
samkeppni í þeim umfangsmiklu aðgerðum sem fram undan eru til þess að draga úr
hlýnun jarðar. Vestager sagði meðal annars að ekki væri óeðlilegt að upp kæmu sjónarmið um
að nú þurfi fremur að efla samvinnu en samkeppni.

Slík sjónarmið fælu hins
vegar í sér alvarlegan misskilning á eðli virkrar samkeppni. Virk samkeppni
muni hjálpa okkur að ná sameiginlegum markmiðum, auka nýsköpun og tryggja að
fyrirtæki starfi í þágu okkar allra, ekki bara í þágu þeirra sjálfra.

„Ég held að það sé ekkert of djúpt í árinni tekið að tala
um þessi grænu og stafrænu umskipti sem friðarverkefni okkar kynslóðar. Líkt og
stofnendur Evrópusambandsins vissu, vitum við að það er engin framtíð án þess
að við umturnum því hvernig við gerum hlutina. Og í því felst gríðarleg vinna
við að virkja allt samfélagið. Það er aðkallandi að Evrópa og í raun allur
heimurinn, vinni saman í því að skapa þá nýju veröld sem við viljum,“
sagði Vestager í ræðu sinni en hún gegnir jafnframt formennsku í samkeppnisnefnd framkvæmdastjórnar ESB. 

Er kominn tími til að leggja samkeppni til hliðar?

Vestager ræddi hlutverk virkrar samkeppni í baráttunni gegn loftslagsvánni og velti upp spurningum sem margir kunni að spurja sig. 

„Það þarf því varla að koma á óvart að erfiðar spurningar
vakni um það hvar samkeppni passi eiginlega inn í þessa jöfnu. Það ætti ekki að
koma á óvart að fólk spyrji sig hvort nú sé ekki tími til kominn að leggja
samkeppni til hliðar og byrja að vinna saman í staðinn,“
sagði Vestager en bætti við. 

„En þessi spurning kjarnar alvarlegan misskilning á eðli
samkeppni. Það kann að vera að í orðabókinni séu samvinna og samkeppni
andstæður. En í heiminum sem við búum í hjálpar samkeppni okkur að ná sameiginlegum
markmiðum. Samkeppni stuðlar að betri nýtingu auðlinda sem er neytendum,
atvinnulífi og samfélaginu í heild í hag. Hún stuðlar að nýsköpun, bæði þegar
kemur að vörum og þjónustu. Og hún stuðlar að því að fyrirtæki starfi þannig að
það sé okkur öllum í hag, ekki bara fyrirtækjunum sjálfum.“ 

2vestager02

Fyrirtæki og heimili ættu ekki líka að gjalda fyrir veika samkeppni

Vestager sagði jafnframt í ræðu sinni að mikilvægt væri að heimili og fyrirtæki þyrftu ekki að líða fyrir veika samkeppni, sérstaklega á tímum heimsfaraldurs. 

„Á stundum sem þessum, þegar fyrirtæki og heimili sjá fram
á aukin útgjöld við það að aðlagast þessari grænu og stafrænu framtíð, ættu þau
ekki líka að þurfa að gjalda fyrir veika samkeppni. Nú þegar hefur verið seilst
djúpt í vasa skattgreiðenda í viðspyrnuaðgerðum. Fyrirtækin sem fá þá peninga
ættu ekki að taka meira en þau þurfa,“
sagði Vestager, en ræðu hennar í heild má nálgast hér.  

Other news

All news and articles

Kaldalón's purchase of FÍ Fasteignafélags properties approved

  • 11 May 2026
  • News

Monitoring necessary in a monopolistic market

  • 4th May 2026
  • NewsIn focus

The Competition Authority tasked with monitoring fuel pricing

  • 30 April 2026
  • NewsIn focus

„It is of enormous benefit to Icelandic society that there is competition in the financial market.“

  • 27 April 2026
  • NewsIn focus

Summer job for economics students at SKE

  • 22 April 2026
  • News
Composite image/SKE

Merger of Hekla and Bílson – consultation process

  • 20 April 2026
  • News
The Competition Authority has concluded that the merger of Ferro Zink ehf. and Metal ehf. hinders effective competition and must therefore be annulled.

The Competition Authority annuls the merger of Ferro Zink and Metal

  • 17 April 2026
  • News

The Competition Authority submits an opinion on the bill to reduce the value added tax on fuel.

  • 16 April 2026
  • News

Competitive assessment is a key factor in enhancing competitiveness.

  • 10 April 2026
  • News
Logo Competition
Borgartún 26, 105 Reykjavík
PO Box: 5120
Telephone: 585 0700

Shortcuts

  • Solutions
  • Laws and regulations
  • Complaints and enquiries
  • Instructional pages

Subjects

  • Subjects
  • Illegal collusion
  • Dominant market position
  • Merger case
  • Competition and the public sector
  • Market research

Competition Authority

  • About the Competition Authority
  • Governance and administration
  • Planning and strategy
  • Human resources
  • Procedure
  • Appellate Board
  • International cooperation
  • The symbol of the Competition Authority
  • Administrative review
  • Privacy Policy
New website (Beta)
Send a suggestion
Send data
  • Solutions
  • Decisions
  • Opinion
  • Reviews
  • Rulings
  • Reports
  • Subjects
  • Illegal collusion
  • Dominant market position
  • Merger case
  • Competition and the public sector
  • Market research
  • Education
  • Market definitions
  • Competitive indicators
  • Instructional pages
  • A conversation about competition
  • Frequently Asked Questions
  • Complaints and enquiries
  • Laws and regulations
  • Published material
  • News
  • Blog posts
  • In focus
  • Videos
  • Speeches and presentations
  • Articles
  • Reduction of VAT on fuel
  • About the Competition Authority
  • Governance and administration
  • Planning and strategy
  • Human resources
  • Procedure
  • Appellate Board
  • International cooperation
  • The symbol of the Competition Authority
  • Administrative review
  • Contact Us

Search

Leita..

The artificial intelligence is thinking...

New website samkeppni.is

The other day, it was launched. Beta version of a new website. We welcome all suggestions and comments regarding the new website via the form below.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.