Logo Competition
Send a suggestion
Send data
Menu
  1. Home
  2. Published material
  3. News

Competition in the grocery market

12 September 2016

Photo: Páll Gunnar Pálsson, CEO of the Competition AuthorityHaraldur Benediktsson alþingismaður skrifaði grein í Morgunblaðið þann 23. ágúst sl., undir yfirskriftinni „öðruvísi samkeppniseftirlit“. Þar gefur hann íslensku samkeppniseftirliti falleinkunn og lætur m.a. að því liggja að það hafi gleymt að hugsa um litlu fyrirtækin. Tiltekur hann sérstaklega að Samkeppniseftirlitið hafi látið óátalið að markaðsráðandi aðilar selji vörur sínar undir kostnaðarverði.

Greinin er gott tilefni til þess að rifja upp eftirtaldar aðgerðir Samkeppniseftirlitsins á dagvörumarkaði:

  1. Árið 2010 staðfesti Hæstiréttur Íslands niðurstöðu um brot Haga á samkeppnislögum.  Hafði  Samkeppniseftirlitið sektað Haga um 315 milljónir króna fyrir að hafa verðlagt mjólkurvörur undir kostnaðarverði. Var sú aðgerð talin alvarleg misnotkun á markaðsráðandi stöðu fyrirtækisins.
    Með ákvörðuninni voru Högum sett skýr mörk. Leiddi hún m.a. til þess að fyrirtækið varð að láta af þeirri stefnu sinni að bjóða ávallt lægra verð en keppinautarnir, en í slíkri verðstefnu felst að smærri verslunum gefst aldrei kostur á að bjóða lægsta verð sem skaðar samkeppni til lengri tíma litið.
  2. Árið 2010 beindi Samkeppniseftirlitið því til Arion banka, sem þá hafði eignast Haga, að selja fyrirtækið í fleiri en einum hluta í því skyni að auka samkeppni. Afréð bankinn að selja verslunarkeðjuna 10-11 frá Högum. Sjá nánar ákvörðun nr. 6/2010.
  3. Árið 2010 sektaði Samkeppniseftirlitið Haga um 270 milljónir króna og sex kjötvinnslufyrirtæki um samtals 135 milljónir króna vegna ólögmæts samráðs um smásöluverð í verslunum. Í mörgum tilvikum voru þessir aðilar að semja um afslætti frá verði sem í raun stóð aldrei til að bjóða neytendum í viðkomandi verslunum. Í því skyni að binda enda á þessa háttsemi og efla samkeppni var lagt bann við því að kjötvinnslufyrirtæki merktu vörur með smásöluverði fyrir verslanir.
    Framangreind fyrirtæki gerðu sátt við Samkeppniseftirlitið um þessa niðurstöðu, sbr. ákvörðun nr. 33/2010. Ekki varð sátt um niðurstöðu sömu rannsóknar gagnvart Síld og fiski ehf. og Matfugli ehf. Var móðurfélag þessara fyrirtækja sektað um 80 milljónir króna vegna brotanna. Sú niðurstaða var staðfest í Hæstarétti árið 2014.
  4. Á árunum 2008 og 2009 sektaði Samkeppniseftirlitið nokkur samtök atvinnufyrirtækja fyrir brot á samkeppnislögum, sem voru til þess fallin að hækka verð á dagvöru til neytenda. Sjá nánar ákvarðanir nr. 10/2008, 5/2009 and 9/2009.
  5. Árið 2012 gaf Samkeppniseftirlitið úr skýrsluna „Verðþróun og samkeppni á dagvörumarkaði“ (nr. 1/2012). Þar er m.a. gerð grein fyrir rannsókn eftirlitsins á kjörum sem dagvöruverslanir njóta hjá birgjum. Í ljós kom að smærri verslanir greiddu birgjum að meðaltali 15% hærra verð en stærsta verslanasamstæðan, Hagar. Smærri verslanir hefðu því litla möguleika á verðsamkeppni.
    Í skýrslunni hvatti Samkeppniseftirlitið birgja til að endurskoða verðstefnu sína að þessu leyti, einkum og sér í lagi gagnvart minni dagvöruverslunum. Hefur eftirlitið fylgt skýrslunni eftir, m.a. með rannsóknum á verðlagningu tiltekinna birgja. Á árinu 2015 var að nýju tekin staða á þessu álitaefni, sbr. skýrslu nr. 1/2015.
  6. Fyrr í sumar komst Samkeppniseftirlitið að þeirri niðurstöðu að Mjólkursamsalan (MS) hefði misnotað markaðsráðandi stöðu sína gagnvart minni keppinauti, með því að selja keppinautum sínum grundvallarhráefni til framleiðslu á mjólkurvörum á óeðlilega háu verði á sama tíma og MS sjálft og tengdir aðilar fengu þetta hráefni á mun lægra verði, og að auki undir kostnaðarverði. Skaðaði þessi háttsemi því samkeppni milli birgja á dagvörumarkaði. Sjá nánar ákvörðun nr. 19/2016.
    Forveri MS, Osta- og smjörsalan, hafði áður misnotað markaðsráðandi stöðu sína með sambærilegum hætti, sbr. ákvörðun Samkeppniseftirlitsins No. 39/2006.

 Better safe than sorry

Af þessu er ljóst að grein Haraldar byggir í meginatriðum á röngum staðhæfingum. Nægir að nefna þá fullyrðingu að Samkeppniseftirlitið hafi látið undirverðlagningu markaðsráðandi fyrirtækja óátalda.

Framangreind upptalning er ekki tæmandi um aðgerðir samkeppnisyfirvalda á dagvörumarkaði. Sömuleiðis er ljóst að fleiri verkefni eru framundan, til þess að efla samkeppni. 

Til að stuðla að úrbótum á markaðnum birti Samkeppniseftirlitið í fyrra skýrslu undir heitinu „Leiðbeining um samkeppni á dagvörumarkaði“ (nr. 1/2015). Í 2. kafla skýrslunnar er að finna yfirlit yfir aðgerðir og umfjöllun samkeppnisyfirvalda um mikilvæg álitaefni á markaðnum og úrræði til að efla samkeppni. Með skýrslunni var því beint til þeirra sem starfa á markaðnum að draga lærdóm af þessum fyrri úrlausnum samkeppnisyfirvalda.

 

Um leið er skýrslan gagnlegt yfirlit fyrir þá sem vilja fjalla um samkeppni á dagvörumarkað á grunni réttra upplýsinga.  

 

[Pistill þessi var birtur sem grein Morgunblaðinu þann 25. ágúst 2016.]

Other news

All news and articles

In light of the coverage of the „Competition Authority's rules“ and mass redundancies

  • 22 May 2026
  • News

The Competition Authority advises Storytel to exercise caution.

  • 22 May 2026
  • News

Kaldalón's purchase of FÍ Fasteignafélags properties approved

  • 11 May 2026
  • News

Monitoring necessary in a monopolistic market

  • 4th May 2026
  • NewsIn focus

The Competition Authority tasked with monitoring fuel pricing

  • 30 April 2026
  • NewsIn focus

„It is of enormous benefit to Icelandic society that there is competition in the financial market.“

  • 27 April 2026
  • NewsIn focus

Summer job for economics students at SKE

  • 22 April 2026
  • News
Composite image/SKE

Merger of Hekla and Bílson – consultation process

  • 20 April 2026
  • News
The Competition Authority has concluded that the merger of Ferro Zink ehf. and Metal ehf. hinders effective competition and must therefore be annulled.

The Competition Authority annuls the merger of Ferro Zink and Metal

  • 17 April 2026
  • News
Logo Competition
Borgartún 26, 105 Reykjavík
PO Box: 5120
Telephone: 585 0700

Shortcuts

  • Solutions
  • Laws and regulations
  • Complaints and enquiries
  • Instructional pages

Subjects

  • Subjects
  • Illegal collusion
  • Dominant market position
  • Merger case
  • Competition and the public sector
  • Market research

Competition Authority

  • About the Competition Authority
  • Governance and administration
  • Planning and strategy
  • Human resources
  • Procedure
  • Appellate Board
  • International cooperation
  • The symbol of the Competition Authority
  • Administrative review
  • Privacy Policy
New website (Beta)
Send a suggestion
Send data
  • Solutions
  • Decisions
  • Opinion
  • Reviews
  • Rulings
  • Reports
  • Subjects
  • Illegal collusion
  • Dominant market position
  • Merger case
  • Competition and the public sector
  • Market research
  • Education
  • Market definitions
  • Competitive indicators
  • Instructional pages
  • A conversation about competition
  • Frequently Asked Questions
  • Complaints and enquiries
  • Laws and regulations
  • Published material
  • News
  • Blog posts
  • In focus
  • Videos
  • Speeches and presentations
  • Articles
  • Reduction of VAT on fuel
  • About the Competition Authority
  • Governance and administration
  • Planning and strategy
  • Human resources
  • Procedure
  • Appellate Board
  • International cooperation
  • The symbol of the Competition Authority
  • Administrative review
  • Contact Us

Search

Leita..

The artificial intelligence is thinking...

New website samkeppni.is

The other day, it was launched. Beta version of a new website. We welcome all suggestions and comments regarding the new website via the form below.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.