Samrunamál

Samruni í skilningi samkeppnislaga telst hafa átt sér stað þegar breyting verður á yfirráðum fyrirtækis til frambúðar, svo sem vegna sameiningar tveggja fyrirtækja eða yfirtöku eins fyrirtækis á öðru

  • Stada-samrunamala-1500-350-px-

Upplýsingasíða um samrunamál

Uppfært: 20. mars 2023

Á þessari síðu er hægt að kynna sér stöðu samrunamála sem eru til rannsóknar hjá Samkeppniseftirlitinu. Neðar á síðunni má svo sjá lista yfir mál sem búið er að rannsaka á árinu.

Samkeppniseftirlitið kappkostar að afgreiða mál á eins skömmum tíma og frekast er unnt en eðli málsins samkvæmt geta rannsóknir á fyrirhuguðum samrunum verið flóknar og yfirgripsmiklar. Á meðan rannsókn stendur yfir mega samrunar ekki koma til framkvæmda.

Samkeppniseftirlitið tekur samruna ekki til rannsóknar fyrr en fullnægjandi samrunatilkynningu hefur verið skilað til eftirlitsins. Það þýðir með öðrum orðum að viðkomandi samrunatilkynning sé í samræmi við reglur Samkeppniseftirlitsins um tilkynningar og málsmeðferð samrunamála og inniheldur þar af leiðandi nauðsynlegar upplýsingar um atriði sem geta skipt máli við athugun á samkeppnislegum áhrifum samrunans.

Þegar fullnægjandi samrunatilkynning hefur borist Samkeppniseftirlitinu byrja lögbundnir tímafrestir að líða og þá birtist samruninn á yfirlitinu hér að neðan.

Samkeppniseftirlitið og fyrirtæki geta einnig átt í forviðræðum um samruna til þess að undirbúa tilkynningu og væntanlega málsmeðferð. Slíkar viðræður eru háðar trúnaði og fara fram áður en tilkynningu er skilað og áður en frestir byrja að líða. 

Tímafrestir í samrunamálum

Samkeppniseftirlitið hefur 25 virka daga til athugunar á samkeppnislegum áhrifum samruna eftir að tilkynnt hefur verið um hann með fullnægjandi hætti. Á þessu stigi telst rannsóknin vera á „fasa l.“

Telji Samkeppniseftirlitið ástæðu til frekari rannsóknar á samkeppnislegum áhrifum samruna skal stofnunin tilkynna samrunaaðilum um það. Nefnist sá hluti rannsóknar „fasi ll.“

Skal ákvörðun Samkeppniseftirlitsins um ógildingu eða setningu skilyrða samruna liggja þá fyrir, eigi síðar en 90 virkum dögum eftir að viðkomandi fyrirtækjum var send tilkynning um frekari rannsókn á samrunanum (þ.e. fasa II tilkynning).

Leggi samrunaaðilar, sem óska eftir sáttaviðræðum við Samkeppniseftirlitið, fram möguleg skilyrði vegna samrunans á 55. virka degi annars fasa rannsóknar eða síðar, framlengist frestur til rannsóknar samrunans sjálfkrafa um 15 virka daga.

Óski samrunaaðilar þess er Samkeppniseftirlitinu heimilt að framlengja framangreinda fresti til rannsóknar samruna um allt að 20 virka daga.

Allir tilkynntir samrunar eru rannsakaðir af Samkeppniseftirlitinu með tilliti til þess hvort markaðsráðandi staða verði til eða að slík staða styrkist, eða leiði til þess að samkeppni á markaði raskist að öðru leyti með umtalsverðum hætti. Ef slíkt á ekki við eru samrunar samþykktir án íhlutunar eftirlitsins.

Hér má lesa meira um samruna almennt og hér má nálgast frekari upplýsingar um samrunatilkynningar. 

 

Samrunamál til meðferðar:

Málsnúmer   Samruni

Móttökudagsetning fullnægjandi samrunatilkynningar

Fasi l eða ll   Lok frests á viðkomandi fasa
2302009 Kaup Fálkans Ísmar ehf. á Iðnvélum ehf. 28. febrúar 2023 l 4. apríl 2023
2302006 Samruni Vinnslustöðvarinnar, Útgerðarfélagið Ós og Leo Seafood 28. febrúar 2023 l 4. apríl 2023
2301013 Kaup Vélsmiðju Orms ehf. á öllu hlutafé Stálsmiðjunnar-Framtaks ehf. 24. janúar 2023 ll 12. júlí 2023
2301007 Kaup Lyfja og heilsu hf. á Apóteki Hafnarfjarðar ehf. 18. janúar 2023 ll 5. júlí 2023
2211002 Samruni Kaupfélags Skagfirðinga svf., Háa kletts ehf., Gleðipinna hf., Granats ehf., Hinna ehf., Jöklaborgar ehf., Eldheima ehf., og ÞR ehf. 18. nóvember 2022 ll 4. maí 2023
2211001 Samruni Kaupfélags Skagfirðinga svf., Háa kletts ehf. og Gleðipinna hf. 18. nóvember 2022 ll 4. maí 2023
2201008 Kaup Ardian á öllu hlutafé í Mílu ehf. 8. febrúar 2022 ll Máli lokið með sátt (sjá frétt)

Samrunamálum lokið 2023:

ÁkvörðunSamruni
10/2023 Samruni Ísfélags Vestmannaeyja hf. og Ramma hf.
9/2023 Kaup Senu og Draupnis fjárfestingafélags á Concept Events
8/2023 Sameiginlegt verkefni Origo og Borealis Data Center um að veita háhraðatölvunarþjónustu (HPC)
7/2023 Kaup Pac1501 ehf. á hluta reksturs Allrahanda GL ehf.
6/2023

Samruni Skel fjárfestingafélags ehf., Skeljungs ehf. og Kletts - sölu og þjónustu ehf. 

5/2023 Samruni Hampiðjunnar hf. og Mørenot
3/2023 Yfirtökutilboð Alfa Framtaks á Origo
2/2023 Samruni Stundarinnar og Kjarnans
1/2023 Samruni Kaupfélags Skagfirðinga svf. og Gunnars ehf.

Samrunamálum lokið 2022:

 Ákvörðun  Samruni
30/2022 Samruni Langasjávar ehf. og K-102 ehf./Freyju
29/2022 Samruni SalMar ASA og NTS ASA
28/2022 Samruni Síldarvinnslunnar og Vísis
27/2022 Kaup Horns IV slhf. á hlut í Eðalfangi ehf.
26/2022 Samruni Top ehf./Bílaumboðsins Öskju ehf. og Lotus Car Rental ehf.
25/2022 Kaup Archer Norge AS og Kaldbaks ehf. á Jarðborunum hf.
24/2022 Samruni Heimilistækja ehf. og Ásbjörns Ólafssonar ehf.
23/2022 Kaup Haga hf. á Eldum rétt ehf.
22/2022 Samruni Fagkaupa ehf. og BG Fossberg ehf.
21/2022 Samruni Nesnúps ehf. og Aflhluta ehf.
20/2022 Samruni Innness ehf. og Örku Heilsuvara ehf.
19/2022 Kaup Egg ehf. á Mítru ehf.
18/2022 Kaup Arnarlax hf. á Eldisstöðinni Ísþór hf.
17/2022 Kaup Fastus ehf. á Expert ehf., Expert kælingu, 1311 Heild og Fossraf ehf.
16/2022 Kaup KLS ehf., Regins hf. og Haga hf. á hlutafé í Klasa ehf.
15/2022 Samruni Fagkaupa ehf. og Hagblikks ehf. 
13/2022 Samruni Rapyd og Valitors
12/2022 Kaup Rotovia hf. á öllu hlutafé í Promens
11/2022 Samruni Fagkaupa ehf. og ÍJ ehf. 
10/2022 Kaup Ferðaskrifstofu Íslands ehf. á Heimsferðum ehf.
9/2022 Kaup Gröfu og grjóts ehf. á Steingarði ehf. 
8/2022  Kaup Rubix Íslandi ehf. á öllum hlutum í Verkfærasölunni ehf. 
6/2022 Samruni Nesfisks ehf. og Flatfisks hf. 
5/2022 Kaup Ríkissjóðs á Auðkenni ehf.
4/2022 Kaup Horns IV á 22% hluta í S4S ehf.
3/2022 Kaup Stekks fjárfestingarfélags ehf. á Límtré Vírnet ehf.
2/2022 Kaup Hreinsitækni ehf. á Snóki þjónustu ehf.
1/2022 Samruni Opinna kerfa ehf. og Premis ehf.