Samkeppni Logo

Erindi Félags íslenskra heimilislækna vegna meintra brota Tryggingastofnunar ríkisins á samkeppnislögum

Reifun

Félag íslenskra
heimilislækna kvartaði yfir samningum sem Tryggingastofnun ríkisins (TR) gerði
við Læknafélag Reykjavíkur f.h. ýmissa hópa sérfræðilækna sem að mati kvartenda
takmörkuðu aðgang nýrra lækna að markaðnum. Heimilislæknar, sem flestir væru
sérfræðimenntaðir, væru undanskildir umræddum samningum TR við aðra
sérfræðinga. Það var niðurstaða samkeppnisráðs að vegna m.a. tvískiptingar
heilbrigðisþjónustu í grunnheilbrigðisþjónustu, sem m.a. heimilislæknar sinna,
og sérfræðiþjónustu, sem m.a. sjálfstætt starfandi sérfræðingar inna af hendi,
væru þessir aðilar ekki á sama samkeppnismarkaði í skilningi samkeppnislaga.
Starfsmenn heilsugæslustöðva væru launþegar hins opinbera á meðan aðrir
sérfræðilæknar væru sjálfstætt starfandi. Af þessum sökum m.a. var ekki talin
þörf á að hafast frekar að í málinu.

Áfrýjunarnefnd samkeppnismála staðfesti ákvörðunina í úrskurði í máli nr.
6/2000. Héraðsdómur Reykjavíkur komst að sömu niðurstöðu í máli nr. E-6594/2000.

Ákvarðanir
Málsnúmer

1 / 2000

Dagsetning
27. janúar 2000
Fyrirtæki

Félag íslenskra heimilislækna

Tryggingastofnun ríkisins

Atvinnuvegir

Heilbrigðis- og félagsmál

Málefni

Samkeppni og hið opinbera

Leit

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.