Samruninn tekur til kaupa HBT Franchise ehf. (Eignarhaldsfélagið Kolka ehf. o.fl.) á HBT ehf. (Hamborgarabúlla Tómasar). HBT Franchise er í meirihlutaeigu fjárfestingarfélagsins Kolku ehf. sem á að fullu Nathan hf. og 50% hlut í Huppuís ehf. Kolka starfar í gegnum félagið Nathan á markaði fyrir innflutning og heildsölu matvara til stóreldhúsa s.s. mötuneyta, fyrirtækja, stofnanna og matvöruverstanna. Þá sérhæfi Emmessís, dótturfélag Nathan, sig í framleiðslu á ís og starfsemi félagsins felist fyrst og fremst í innflutningi og framleiðslu á ísvörum. Starfsemi HBT felist í sölu á skyndibita, með áherslu á sölu á hamborgurum og tilheyrandi meðlæti.
11 / 2026
Eignarhaldsfélagið Kolka ehf.
HBT ehf. (Hamborgarabúlla Tómsar)
Matvörur
Neysluvörur, rekstrarvörur o.fl.
Samrunamál
"*" gefur til kynna skyldusvið