Samkeppni Logo

Samruni Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar hf. á Kolefni ehf.

Reifun

Samkeppniseftirlitið hefur haft til umfjöllunar samruna Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar hf. á Kolefni ehf. Ölgerðin er aldargamalt fyrirtæki sem framleiðir, flytur inn, dreifir og selur ýmis konar mat- og drykkjarvörur á heildsölustigi. Kolefni er eignarhaldsfélag sem hefur þann eina tilgang að eiga fasteign að Grjóthálsi 7-11 í Reykjavík. Þessi fasteign hýsir höfuðstöðvar Ölgerðarinnar. Frá byggingu fasteignarinnar hefur Ölgerðin leigt fasteignina af félaginu og verður því í reynd engin breyting á starfsemi Ölgerðarinnar við þessi viðskipti.

Að undangenginni rannsókn er það því niðurstaða eftirlitsins að ekki sé ástæða til að aðhafast vegna þessa samruna á grundvelli 17. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005 þar sem að markaðsráðandi staða er ekki að verða til né slík staða að styrkjast. Þá er samkeppni heldur ekki að raskast með neinum hætti hér.

Ákvarðanir
Málsnúmer

21 / 2017

Dagsetning
23. október 2017
Fyrirtæki

Kolefni ehf.

Ölgerð Egils Skallagrímssonar ehf.

Atvinnuvegir

Matvörur

Neysluvörur, rekstrarvörur o.fl.

Málefni

Samrunamál

Leit

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.