Samkeppni Logo

Brot Senu ehf. á samrunareglum samkeppnislaga

Reifun

Í ákvörðun þessari hefur Samkeppniseftirlitið komist að þeirri niðurstöðu að Sena ehf. hafi brotið gegn banni samkeppnislaga við því að samruni komi til framkvæmda áður en eftirlitið hefur heimilað hann. Er lögð 15 milljón króna sekt á Senu vegna þessa.

Í samkeppnislögum er lagt bann við því að samruni komi til framkvæmda á meðan Samkeppniseftirlitið fjallar um hann, nema að til komi sérstakt leyfi Samkeppniseftirlitsins. Er þessari reglu ætlað að tryggja að unnt sé með fullnægjandi hætti að vinna gegn samkeppnishamlandi samrunum. Í 37. gr. samkeppnislaga er sérstaklega gert ráð fyrir því að lögð séu viðurlög á fyrirtæki sem brjóta gegn þessari reglu.

Mál Senu tengist kaupum félagsins á Skífunni í október 2008. Var sá samruni framkvæmdur af Senu áður en hann var tilkynntur Samkeppniseftirlitinu. Jafnframt var honum hrint í framkvæmd meðan málið var í rannsókn. Fólst í þessu brot Senu á 3. mgr. 17. gr. a samkeppnislaga. Í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins frá 2. apríl 2009 (mál nr. 12/2009) var komist að þeirri niðurstöðu að samruni Senu og Skífunnar raskaði samkeppni. Þar sem annar aðili hafði í millitíðinni eignast Senu var talið unnt að heimila samrunann að uppfylltum skilyrðum til þess að vernda samkeppni.

 

Ákvarðanir
Málsnúmer

23 / 2009

Dagsetning
26. júní 2009
Fyrirtæki

Sena ehf.

Atvinnuvegir

Framleiðsla kvikmynda, sjónvarpsefnis og útvarpsefnis

Mennta- og menningarmál

Málefni

Samrunamál

Leit

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.