Samkeppni Logo

Kaup Myllunnar-Ora ehf. á Gunnars ehf

Reifun

Með ákvörðun þessari hefur Samkeppniseftirlitið tekið afstöðu til kaupa Myllunnar-Ora ehf. á Gunnars ehf. í samræmi við ákvæði 17.gr. samkeppnislaga. Áhrifa samrunans gætir aðallega á mörkuðum fyrir hreint majónes og aðrar tilbúnar kaldar sósur.

 Á grundvelli fyrirliggjandi gagna er það mat Samkeppniseftirlitsins að ekki séu vísbendingar um að markaðsráðandi staða verði til eða hún styrkist í kjölfar samrunans þannig að sameinað fyrirtæki geti hagað sér að töluverðu leyti án tillits til keppinauta eða viðskiptavina. Sterkir keppinautar starfa á skilgreindum mörkuðum málsins, stærri en hið sameinaða fyrirtæki, bæði í framleiðslu og innflutningi á umræddum vörum. Þá er ekkert sem bendir til þess að samruninn raski samkeppni með umtalsverðum hætti. 

Af þeim sökum telur Samkeppniseftirlitið hvorki ástæðu til þess að aðhafast vegna samrunans né rannsaka hann frekar og lýkur því meðferð málsins á fyrsta fasa.

Ákvarðanir
Málsnúmer

3 / 2025

Dagsetning
29. janúar 2025
Fyrirtæki

Gunnars ehf.

Myllan-Ora ehf.

Atvinnuvegir

Matvörur

Neysluvörur, rekstrarvörur o.fl.

Málefni

Samrunamál

Leit

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.