| Með úrlausn þessari er gerð grein fyrir rannsókn Samkeppniseftirlitsins á tveimur samrunum. Annars vegar samruni Samkaupa hf. og Atlögu (Heimkaup) og hins vegar samruna Samkaupa hf. og Orkunnar IS ehf.
Í ljósi tengsla þessara samrunamála, og þar sem sömu fyrirtækjasamstæður eiga í hlut í báðum samrunum, birtir Samkeppniseftirlitið með úrlausn þessari sameiginlega ákvörðun þar sem gerð er grein fyrir niðurstöðum rannsóknar eftirlitsins á báðum umræddum samrunum. Það skal þó tekið fram að sjálfstæð rannsókn fór fram í báðum málum á ólíkum tímabilum.
Var það niðurstaða Samkeppniseftirlitsins að með hliðsjón af fyrirliggjandi gögnum og rannsókn Samkeppniseftirlitsins eru hvorki vísbendingar um að samruni Samkaupa og Heimkaupa né samruni Samkaupa og Orkunnar leiði til þess að markaðsráðandi staða verði til eða styrkist, eða að samkeppni verði raskað að öðru leyti með umtalsverðum hætti. Lauk því rannsókn beggja mála á fyrsta fasa. |
3 / 2026
Atlaga ehf.
Orkan IS ehf.
Samkaup hf.
Matvörur
Samrunamál
"*" gefur til kynna skyldusvið