Samkeppni Logo

Samruni Fiskisunds ehf. og Kex Hostel ehf.

Reifun

Samkeppniseftirlitið hefur haft til umfjöllunar samruna Fiskisunds ehf. og Kex Hostel ehf. Fiskisund ehf. er eignarhaldsfélag og fer með yfirráð í nokkrum félögum sem stunda atvinnurekstur. Starfsemi Kex Hostel ehf. felst í rekstri gistiheimils í Reykjavík og rekstri veitingastaðar í Reykjavík.

Rannsókn Samkeppniseftirlitsins leiddi í ljós að um er að ræða svokallaðan samsteypusamruna þar sem samrunaaðilar stunda atvinnurekstur á ótengdum mörkuðum. Þá er ekki ástæða til að ætla að samkeppni raskist að öðru leyti með umtalsverðum hætti. Að undangenginni rannsókn er það niðurstaða eftirlitsins að ekki sé ástæða til að aðhafast vegna þessa samruna á grundvelli 17. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005. 

Ákvarðanir
Málsnúmer

32 / 2018

Dagsetning
7. desember 2018
Fyrirtæki

Fiskisund ehf.

Kex Hostel ehf.

Atvinnuvegir

Neysluvörur, rekstrarvörur o.fl.

Málefni

Samrunamál

Leit

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.