Samruninn tekur til kaupa Orkusölunnar ehf. á hluta af rekstri Fallorku ehf. Orkusalan starfar á markaði annars vegar fyrir framleiðslu á raforku og hins vegar á markaði fyrir smásölu raforku. Fallorka starfar á sömu mörkuðum og Orkusalan og er hér því um láréttan samruna að ræða. Nánar tiltekið kaupir Orkusalan smásölustarfsemi og hleðslustöðvar Fallorku. Að mati Samkeppniseftirlitsins hefur samruninn lítil áhrif á markað fyrir framleiðslu og sölu á raforku í smásölu og reksturs hleðslustöðva í almannarýmum, hvort sem er á landinu öllu eða á dreifiveitusvæði Norðurorku
32 / 2025
Fallorka ehf.
Orkusalan ehf.
Orkumál
Raforkumál (framleiðsla, flutningur, dreifing og sala)
Samrunamál
"*" gefur til kynna skyldusvið