Með ákvörðun þessari er gerð grein fyrir rannsókn Samkeppniseftirlitsins á kaupum Ferðaskrifstofu Icelandia ehf. á hluta af rekstri Reykjavík Sightseeing Invest ehf., n.t.t. vörumerkjunum Reykjavík Sightseeing, Airport Direct og Airport Express, réttindum til léna, efni og tækjum tengt dagsferðum Reykjavík Sightseeing og viðskiptasamböndum vegna dagsferðahluta hins selda.
Þeir markaðir sem koma til skoðunar í þessu máli eru annars vegar markaður fyrir skipulagningu og sölu á dagsferðum á Íslandi og mögulegir undirmarkaðir, og hins vegar markaður fyrir áætlunarakstur á milli FLE og höfuðborgarsvæðisins.
Samkeppniseftirlitið taldi ekki forsendur til íhlutunar vegna kaupanna, m.a. í ljósi þess að samrunaaðilar féllu frá hluta kaupanna sem rannsókn hafði leitt í ljós að væri helsta mögulega samkeppnishindrunin sem leiddi af samrunanum. Um var að ræða gistiheimilið Bus hostel ehf. og tengd réttindi að Skógarhlíð 10, þar sem seljandi hafði rekið starfsemi og aðstöðu fyrir dagsferðir og áður flugrútu.
43 / 2025
Ferðaskrifstofa Icelandia ehf.
Reykjavík Sightseeing Invest ehf.
Ferðaþjónusta
Samgöngur og ferðamál
Samrunamál
"*" gefur til kynna skyldusvið