Með bréfi dags. 26. júlí 2007, var Samkeppniseftirlitinu tilkynnt um samruna Nýafls ehf. og Eignarhaldsfélagsina Nesprýði ehf. Að mati Samkeppniseftirlitsins fela kaupin í sér samruna í skilningi 4. og 17. gr. samkeppnislaga og fellur samruninn undir samrunaeftirlit 17. gr. laganna þar sem veltuskilyrði ákvæðisins eru uppfyllt. Athuganir Samkeppniseftirlitsins gefa hins vegar ekki til kynna að samruninn muni raska samkeppni. Í ljósi þessa er það mat eftirlitsins að ekki sé ástæða til að aðhafast frekar vegna samrunans á grundvelli 17. gr. samkeppnislaga.
48 / 2007
Eignarhaldsfélagið Nesprýði ehf.
Nýafl ehf.
Sérfræðiþjónusta og önnur þjónusta
Ýmis þjónusta sem ekki er tilgreind annars staðar
Samrunamál
"*" gefur til kynna skyldusvið