Samkeppni Logo

Áskriftarskilmálar sjónvarpsstöðvarinnar Sýnar vegna heimsmeistarakeppninnar í knattspyrnu 2006

Reifun

Með bréfi, dagsettu 26. maí 2006, óskaði Stefán Geir Þórisson hrl. eftir því við Samkeppniseftirlitið að könnuð yrðu tilboð sjónvarpsstöðvarinnar Sýnar að áskrift í tengslum við heimsmeistarakeppnina í knattspyrnu 2006. Óskaði hann sérstaklega eftir könnun á því hvort gjaldtaka Sýnar væri óhófleg og hvort í tilboðum Sýnar fælust ólögmætir söluskilmálar. Samkeppniseftirlitið telur að kostnaðarforsendur hafi réttlætt uppsett verð Sýnar fyrir áskrift að heimsmeistarakeppninni. Þá telur Samkeppniseftirlitið að ekki hafi falist ólögmæt samtvinnun í því að gera væntanlegum viðskiptavinum að velja á milli þess að kaupa áskrift þann tíma sem heimsmeistarakeppnin stóð yfir ellegar að kaupa áskrift að Sýn í lengri tíma. Bindingin væri hófleg og forsendur tilboðanna að öðru leyti málefnalegar. Með vísan til þess telur Samkeppniseftirlitið ekki ástæðu til að hafast frekar að í málinu.

Ákvarðanir
Málsnúmer

5 / 2007

Dagsetning
8. febrúar 2007
Fyrirtæki

365 Ljósvakamiðlar ehf.

365 prentmiðlar ehf.

Og fjarskipti hf

Stefán Geir Þórisson hrl.

Sýn

Atvinnuvegir

Fjarskipti, upplýsingatækni og fjölmiðlun

Ljósvakamiðlar

Málefni

Markaðsyfirráð

Leit

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.