Samkeppni Logo

Kaup Sparisjóðs Siglufjarðar á afgreiðslu Glitnis á Siglufirði

Reifun

Með bréfi dags. 24. nóvember 2006 fór Samkeppniseftirlitið fram á að fá senda samrunatilkynningu vegna kaupa Sparisjóðs Siglufjarðar á afgreiðslu Glitnis á Siglufirði en tilkynningu um viðskiptin mátti þá finna á vefsíðu Sparisjóðsins. Að loknum nokkrum bréfaskiptum barst Samkeppniseftirlitinu samrunaskrá vegna samrunans þann 24. júlí 2007. Rannsókn Samkeppniseftirlitsins benti ekki til þess að röskun yrði á samkeppni vegna samruna aðila enda væru afgreiðslur sparisjóðsins og Glitnis á Siglufirði lítt rekstrarvænlegar í þeirri mynd sem þær voru reknar. Sá Samkeppniseftirlitið því ekki tilefni til þess að aðhafast vegna samrunans.

Ákvarðanir
Málsnúmer

61 / 2007

Dagsetning
4. desember 2007
Fyrirtæki

Glitnir

Sparisjóður Siglufjarðar

Atvinnuvegir

Fjármálaþjónusta

Viðskiptabankaþjónusta

Málefni

Samrunamál

Leit

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.