Samkeppniseftirlitið heimilaði kaup M invest ehf. á öllu hlutafé Gólflagna ehf. M invest er móðurfélag Iðnafls ehf. og Iðnafls eigna ehf. en hið fyrrnefnda starfar m.a. á sviði sölu og lagningu iðnaðargólfa. Gólflagnir ehf. starfar einnig á sviði sölu og lagningu iðnaðargólfa. Samkeppniseftirlitið taldi ekki ástæðu til íhlutunar né frekari rannsóknar, einkum þar sem aðgangshindranir á markað fyrir lagningu iðnaðargólfa virðast fremur litlar og lauk málinu á fyrsta fasa.
7 / 2026
Gólflagnir ehf.
M Invest ehf.
Byggingarþjónusta
Verktakastarfsemi
Samrunamál
"*" gefur til kynna skyldusvið