Samkeppni Logo

Kvörtun yfir samkeppnisstöðu rannsóknarþjónustunnar Sýnis hf. gagnvart Hollustuvernd ríkisins

Reifun

Mælt var fyrir um fjárhagslegan aðskilnað milli rannsóknarstofu
Hollustuverndar og annarra sviða stofnunarinnar.

„1.   Stofnuð verði sérstök eining um
rekstur rannsóknastofu Hollustuverndar ríkisins. Reikningshald hennar skal vera
sjálfstætt. Reikningsskil skulu gerð í samræmi við meginreglur laga um
ársreikninga og skulu þau liggja fyrir opinberlega með sambærilegum hætti og
almennt gerist.

2.    Gera skal sérstakan stofnefnahagsreikning. Skulu þær eignir sem
teljast til rannsóknastofunnar metnar á markaðsverði ef þess er kostur en
annars á endurkaupsverði að frádregnum hæfilegum afskriftum.

3.    Með skuldum rannsóknastofunnar skulu teljast skuldbindingar sem
tengjast starfsemi hennar.

4.    Öll viðskipti milli rannsóknastofunnar og annarra sviða
Hollustuverndar skulu verðlögð á markaðsverði eins og um viðskipti milli
óskyldra aðila væri að ræða. Ef markaðsverð liggur ekki fyrir skal miðað við
kostnaðarverð að viðbættri hæfilegri álagningu.

5.       Gjaldskrá skal standa undir rekstrarkostnaði
rannsóknastofunnar auk hæfilegrar álagningar eins og um sjálfstæðan rekstur
væri að ræða.“

Ákvarðanir
Málsnúmer

8 / 1997

Dagsetning
25. mars 1997
Fyrirtæki

Rannsóknarþjónustan Sýni hf

Atvinnuvegir

Sérfræðiþjónusta og önnur þjónusta

Ýmis þjónusta sem ekki er tilgreind annars staðar

Málefni

Samkeppni og hið opinbera

Leit

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.