Kvartað var yfir þeirri háttsemi ÁTVR að útiloka
Kaupfélag Húnvetninga frá þátttöku í útboði á húsnæði fyrir rekstur vínbúðar.
Færi það gegn meginreglu í stjórnsýslu. Samkeppnisráð kvaðst ekki hafa
úrskurðarvald um hvort meginreglur í stjórnsýslu hafi verið brotnar. Taldi
ráðið að hvorki yrði séð að samningar ÁTVR í tengslum við rekstur vínbúðar færu
gegn samkeppnislögum né að um væri að ræða skaðleg áhrif á samkeppni að öðru
leyti.
29 / 1994
ÁTVR
Kaupfélag Húnvetninga
Áfengi og tóbak
Neysluvörur, rekstrarvörur o.fl.
Markaðsyfirráð
Ólögmætt samráð
"*" indicates required fields