Framleiðendafélagið,
samtök félaga og fyrirtækja sem framleiða kvikmyndir, kvartaði yfir misrétti
sem félagar sættu í viðskiptum við RÚV. Krafist var fjárhagslegs aðskilnaðar
framleiðsludeilda RÚV sem framleiða innlent dagskrárefni sjónvarps frá öðrum
rekstri RÚV.
Ákvörðun
samkeppnisráðs: „Til að kostnaðaráætlanir
Ríkisútvarpsins – Sjónvarps gefi glöggar og raunhæfar upplýsingar um þann fasta
og breytilega kostnað sem fellur til vegna framleiðslu innlends dagskrárefnis
stofnunarinnar, þannig að sjálfstætt starfandi kvikmyndaframleiðendur búi við
sanngjarnari samkeppnisskilyrði, mælir Samkeppnisráð fyrir um fjárhagslegan
aðskilnað, annars vegar milli þess hluta rekstrar Ríkisútvarpsins sem annast
öflun og útsendingu á dagskrárefni og hins vegar þess hluta rekstrarins sem
snýr að framleiðslu dagskrárefnis Sjónvarps, eigi síðar en 1. júlí 1996. Er
þetta gert á grundvelli 2. mgr. 14. gr. samkeppnislaga nr. 8/1993.“
Úrskurður nr. 18/1995. Ákvörðun
samkeppnisráðs felld úr gildi.
21 / 1995
Framleiðendafélagið
RÚV ohf.
Fjarskipti, upplýsingatækni og fjölmiðlun
Ljósvakamiðlar
Samkeppni og hið opinbera
"*" indicates required fields