Arion banki eignaðist allt hlutafé í G-7 sem er eigandi nokkurra fasteigna sem hýsa starfsemi á vegum Ölgerðar Egils Skallagrímssonar. Það var niðurstaða Samkeppniseftirlitsins að yfirtakan raskaði samkeppni og að nauðsynlegt væri að setja samrunanum skilyrði. Féllust samrunaaðilar á að hlíta þeim skilyrðum sem sett eru fram í ákvörðuninni. Um er að ræða ítarleg skilyrði, sem miða að því að draga úr samkeppnisröskun sem stafað getur af eignarhaldi bankans á fyrirtækinu. Hefur Arion bani fallist á að hlíta þeim skilyrðum sem sett eru fram í ákvörðuninni, með undirritun sáttar. Við vinnslu málsins hefur einnig verið höfð hliðsjón af kvörtunum og ábendingum sem Samkeppniseftirlitinu hafa borist.
12 / 2011
Arion banki hf.
G-7 ehf.
Fasteignasala
Sérfræðiþjónusta og önnur þjónusta
Samrunamál
"*" indicates required fields