Landsbankinn hf. hefur tekið yfir Lífsval ehf. sem er fasteignafélag sem fjárfestir í landi. Það var niðurstaða Samkeppniseftirlitsins að yfirtakan raskaði samkeppni og að nauðsynlegt væri að setja samrunanum skilyrði. Féllust samrunaaðilar á að hlíta þeim skilyrðum sem sett eru fram í ákvörðuninni. Um er að ræða skilyrði sem miða að því að draga úr samkeppnisröskun sem stafað getur af eignarhaldi bankans á fyrirtækjum. Hefur Landsbankinn fallist á að hlíta þeim skilyrðum með undirritun sáttar.
17 / 2012
Landsbankinn hf.
Lífsval ehf.
Fjármálaþjónusta
Önnur fjármálaþjónusta
Samrunamál
"*" indicates required fields