Samkeppniseftirlitið hefur haft til skoðunar kaup HB Granda hf. á öllu hlutafé í Norðanfiski ehf. Fyrir kaupin átti HB Grandi 23,81% í Norðanfiski. HB Grandi er eitt stærsta sjávarútvegsfyrirtæki landsins og er helsta starfsemi þess veiðar og vinnsla á bolfiski og uppsjávarfiski. Fyrirtækið selur megið af framleiðslu sinni á erlendan markað. Norðanfiskur framleiðir fiskafurðir fyrir neytenda- og stóreldhúsamarkað innanlands og utan. Samkeppniseftirlitið telur að ekki sé ástæða til að aðhafast vegna þessa samruna á grundvelli 17. gr. samkeppnislaga.
15 / 2014
HB Grandi hf.
Norðanfiksur ehf.
Neysluvörur, rekstrarvörur o.fl.
Sjávarútvegur og fiskvinnsla
Samrunamál
"*" indicates required fields