Leit í úrlausnum: sláið inn efnisorð og/eða veljið úr valmyndinni hér fyrir neðan.

Ákvarðanir

Kaup Regins hf. á Bréfabæ ehf., Fjárvara ehf. og Sævarhöfða 2 ehf.

  • Sækja skjal
  • Málsnúmer: 10/2015
  • Dagsetning: 11/5/2015
  • Fyrirtæki:
    • Bréfabær ehf.
    • Fjárvari ehf.
    • Sævarhöfði 2 ehf.
    • Reginn hf.
  • Atvinnuvegir:
    • Sérfræðiþjónusta og önnur þjónusta
    • Fasteignasala
  • Málefni:
    • Samrunamál
  • Reifun

    Samkeppniseftirlitið hefur haft til umfjöllunar yfirtöku Regins hf. á Bréfabæ ehf., Fjárvara ehf. og Sævarhöfða 2 ehf. Félögin starfa við útleigu á atvinnuhúsnæði og er Reginn eitt þriggja stórra fasteignafélaga á markaðnum. Eftir samrunann verður Reginn næststærsta fasteignafélag landsins. Stærstu eignir þess eru Smáralind og Egilshöll en auk þess á fyrirtækið dreift safn af verslunar- og skrifstofuhúsnæði. Eignasafn hinna yfirteknu félaga er að verulegu leyti iðnaðar- og geymsluhúsnæði sem á í takmarkaðri samkeppni við fasteignir í eignasafni Regins. Reginn telst ekki vera í markaðsráðandi stöðu, hvorki fyrir né eftir samrunann.

    Að undangenginni rannsókn og með hliðsjón af gögnum málsins er það mat Samkeppniseftirlitsins að samruninn muni ekki leiða til markaðsráðandi stöðu eða að öðru leyti hafa skaðleg áhrif á samkeppni. Því eru ekki forsendur til að aðhafast vegna samrunans á grundvelli 17. gr. samkeppnislaga.