Samkeppni Logo

Samruni Gæðabaksturs ehf. og Brauðgerðar Kr. Jónssonar ehf.

Reifun

Samkeppniseftirlitið hefur haft til umfjöllunar samruna Gæðabaksturs ehf. og Brauðgerðar Kr. Jónssonar ehf. Meginstarfsemi fyrirtækjanna felst í framleiðslu og heildsölu á ýmsum tegundum af brauðmeti og kökum. Fer starfsemi Brauðgerðarinnar fram á Akureyri en starfstöðvar Gæðabaksturs eru staðsettar á höfuðborgarsvæðinu.

Um er að ræða láréttan samruna þar sem Gæðabakstur kaupir allt hlutafé Brauðgerðarinnar. Að undangenginni rannsókn og með hliðsjón af gögnum málsins er það mat Samkeppniseftirlitsins að samruninn hindri ekki virka samkeppni á mörkuðum málsins og leiði ekki til myndunar eða styrkingar á markaðsráðandi stöðu. Þá leiði samruninn ekki til þess að samkeppni á markaði raskist að öðru leyti með umtalsverðum hætti. Því eru ekki forsendur til að aðhafast frekar vegna samrunans á grundvelli 17. gr. c samkeppnislaga nr. 44/2005.

Ákvarðanir
Málsnúmer

1 / 2016

Dagsetning
21. janúar 2016
Fyrirtæki

Brauðgerð Kr. Jónssonar ehf.

Gæðabakstur ehf.

Atvinnuvegir

Matvörur

Neysluvörur, rekstrarvörur o.fl.

Málefni

Samrunamál

Leit

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.