Samkeppniseftirlitið hefur haft til umfjöllunar samruna B2B ehf. og Café Parísar. B2B ehf. er félag sem tengist rekstri nokkurra veitingastaða og með samruna þessum tekur B2B ehf. yfir rekstur á Café París, sem er einnig veitingastaður.
Að undangenginni rannsókn og með hliðsjón af gögnum málsins er það mat Samkeppniseftirlitsins að samruninn hindri ekki virka samkeppni á mörkuðum málsins og leiði ekki til myndunar eða styrkingar á markaðsráðandi stöðu. Þá leiðir samruninn ekki til þess að samkeppni á markaði raskist að öðru leyti með umtalsverðum hætti. Því eru ekki forsendur til að aðhafast vegna samrunans.
18 / 2016
B2B ehf.
Café París
Ferðaþjónusta
Samgöngur og ferðamál
Samrunamál
"*" indicates required fields