Samkeppni Logo

Samruni Pressunnar ehf. og ÍNN – Íslands Nýjasta Nýtt ehf.

Reifun

Samkeppniseftirlitið hefur haft til umfjöllunar samruna Pressunnar ehf. og ÍNN- Íslands Nýjasta Nýtt ehf.  ÍNN starfar á sjónvarpsmarkaði og við sölu auglýsinga í sjónvarp. Pressan starfar aðallega á mörkuðunum fyrir vefmiðla/ fréttmiðlun á netinu og sölu auglýsinga á vefmiðlum annars vegar og fyrir útgáfu dagblaða og sölu auglýsinga í dagblöðum hins vegar.

Um er að ræða samsteypusamruna þar sem Pressan kaupir allt hlutafé í ÍNN. Að undangenginni rannsókn og með hliðsjón af gögnum málsins er það mat Samkeppniseftirlitsins að samruninn hindri ekki virka samkeppni á mörkuðum málsins og leiði ekki til myndunar eða styrkingar á markaðsráðandi stöðu. Þá leiðir samruninn ekki til þess að samkeppni á markaði raskist að öðru leyti með umtalsverðum hætti. Því eru ekki forsendur til að aðhafast vegna samrunans á grundvelli 17. gr. c samkeppnislaga nr. 44/2005.

Ákvarðanir
Málsnúmer

3 / 2017

Dagsetning
23. janúar 2017
Fyrirtæki

ÍNN - Íslands Nýjasta Nýtt ehf.

Pressan ehf.

Atvinnuvegir

Fjarskipti, upplýsingatækni og fjölmiðlun

Ljósvakamiðlar

Málefni

Samrunamál

Leit

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.