Samkeppniseftirlitið hefur haft til umfjöllunar samruna Nesfisk ehf. og Ný-fisks ehf. Megintilgangur Nesfisks sala fiskafurða, fiskverkun og útgerð. Tilgangur Ný-fisks er fyrst og fremst fiskverkun og útflutningur. Dótturfélag Ný-fisks, Útgerðarfélag Sandgerðis ehf., er útgerðarfyrirtæki sem gerir út eitt fiskiskip.
Um er að ræða láréttan samruna þar sem Nesfiskur kaupir allt hlutafé í Ný-fiski. Að undangenginni rannsókn og með hliðsjón af gögnum málsins er það mat Samkeppniseftirlitsins að samruninn hindri ekki virka samkeppni á mörkuðum málsins og leiði ekki til myndunar eða styrkingar á markaðsráðandi stöðu. Þá leiðir samruninn ekki til þess að samkeppni á markaði raskist að öðru leyti með umtalsverðum hætti. Því eru ekki forsendur til að aðhafast vegna samrunans á grundvelli 17. gr. c samkeppnislaga nr. 44/2005.
6 / 2017
Nesfiskur ehf.
Ný-Fiskur ehf.
Neysluvörur, rekstrarvörur o.fl.
Sjávarútvegur og fiskvinnsla
Samrunamál
"*" indicates required fields