Leit í úrlausnum: sláið inn efnisorð og/eða veljið úr valmyndinni hér fyrir neðan.

Ákvarðanir

Kaup Eikar fasteignafélags hf. á Slippnum fasteignafélagi ehf.

  • Sækja skjal
  • Málsnúmer: 9/2017
  • Dagsetning: 20/2/2017
  • Fyrirtæki:
    • Eik fasteignafélag hf.
    • Slippurinn fasteignafélag ehf.
  • Atvinnuvegir:
    • Sérfræðiþjónusta og önnur þjónusta
    • Fasteignasala
  • Málefni:
    • Samrunamál
  • Reifun

    Samkeppniseftirlitið hefur haft til umfjöllunar kaup Eikar fasteignafélags hf. á Slippnum fasteignafélagi ehf. Um er að ræða láréttan samruna á markaði fyrir leigu á atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Eik fasteignafélag er þriðja stærsta leigufélag landsins og með þessum samruna stækkar eignasafn fyrirtækisins óverulega.

    Að undangenginni rannsókn og með hliðsjón af gögnum málsins er það mat Samkeppniseftirlitsins að samruninn hindri ekki virka samkeppni og leiði ekki til myndunar markaðsráðandi stöðu. Þá leiðir hann ekki til þess að samkeppni á markaði raskist að öðru leyti með umtalsverðum hætti. Því eru ekki forsendur til að aðhafast vegna samrunans á grundvelli 17. gr. c. samkeppnislaga nr. 44/2005.