Samkeppni Logo

Samruni Johan Rönning hf. og Vatns og veitna ehf.

Reifun

Samkeppniseftirlitið hefur haft til umfjöllunar samruna Johan Rönning hf. og Vatns og veitna ehf. Johan Rönning starfar á ýmsum undirmörkuðum hins alhliða byggingavörumarkaðar. Ber þar helst að nefna innflutning og dreifingu á raflagnaefni, rafvörum og skyldum vörum. Þá starfar Johan Rönning einnig við innflutning á efni til miðstöðvar- og neysluvatnslagna. Fyrirtækið Vatn og veitur sérhæfir sig í innflutningi á efni til miðstöðvar- og neysluvatnslagna og vatnsveituefni.  

Um er að ræða láréttan samruna þar sem Johan Rönning kaupir allt hlutafé í Vatni og veitum.  Að undangenginni rannsókn og með hliðsjón af gögnum málsins er það mat Samkeppniseftirlitsins að samruninn hindri ekki virka samkeppni á mörkuðum málsins og leiði ekki til myndunar eða styrkingar á markaðsráðandi stöðu. Þá leiðir samruninn ekki til þess að samkeppni á markaði raskist að öðru leyti með umtalsverðum hætti. Því eru ekki forsendur til að aðhafast vegna samrunans á grundvelli 17. gr. c samkeppnislaga nr. 44/2005.

Ákvarðanir
Málsnúmer

16 / 2017

Dagsetning
8. maí 2017
Fyrirtæki

Jóhann Rönning hf.

Vatn og veitur ehf.

Atvinnuvegir

Bygginga- og heimilisvörur (heimilistæki, föt, snyrtivörur)

Neysluvörur, rekstrarvörur o.fl.

Málefni

Samrunamál

Leit

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.