Samkeppniseftirlitið hefur haft til umfjöllunar samruna Arctic Adventures hf. og Extreme Iceland ehf. Samrunaaðilar starfa á sviði ferðaþjónustu og bjóða upp á margs konar þjónustu fyrir ferðamenn, svo sem flúðasiglingar, köfun, jöklaferðir, o.fl.
Arctic Adventures kaupir allt hlutafé í Extreme Iceland og verður til sterkt fyrirtæki á sviði ferðaþjónustu sem býður upp á víðtæka þjónustu. Að undangenginni rannsókn og með hliðsjón af gögnum málsins er það þó mat Samkeppniseftirlitsins að samruninn leiði ekki til myndunar eða styrkingar á markaðsráðandi stöðu. Þá leiðir samruninn ekki til þess að samkeppni á markaði raskist að öðru leyti með umtalsverðum hætti. Því eru ekki forsendur til að aðhafast vegna samrunans.
19 / 2017
Arctic Adventures hf.
Extreme Iceland ehf.
Ferðaþjónusta
Samgöngur og ferðamál
Samrunamál
"*" indicates required fields